FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 18. JÚNÍ 2007


Aflaverðmæti 25 milljarðar króna

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 24,8 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2007 samanborið við 19,2 milljarða á sama tímabili 2006. Aflaverðmæti hefur aukist um 5,6 milljarða eða 29,2% milli ára. Aflaverðmæti marsmánaðar nam 9,3 milljörðum en í mars í fyrra var verðmæti afla 7,9 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok mars orðið 17,9 milljarðar miðað við 14,7 milljarða á sama tíma árið 2006 og er því um 21,6% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 10,6 milljarðar og jókst um 24,2%. Aflaverðmæti ýsu nam 3,5 milljörðum, sem er 26,5% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 21,5%, var 896 milljónir.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 19,7%, nam 1 milljarði króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 90% og nam 5,9 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra.

Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands, var 11,8 milljarðar króna, sem er aukning um 3,7 milljarða eða 45,8%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 43,8%, var 4,5 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 6 milljarðar og jókst um 1,8% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 2,1 milljarði sem er 20,2% aukning.

Verðmæti afla janúar–mars 2007    
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Mars Janúar–mars fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– mars
             
Verðmæti alls 7.911,3 9.257,9 19.207,2 24.820,2 29,2
             
Botnfiskur 6.587,4 7.260,2 14.726,3 17.906,9 21,6
  Þorskur 3.478,6 4.371,3 8.520,1 10.581,8 24,2
  Ýsa 1.380,1 1.314,3 2.790,7 3.529,9 26,5
  Ufsi 360,5 430,0 737,3 895,5 21,5
  Karfi 1.014,5 724,7 1.836,7 1.764,0 -4,0
  Úthafskarfi 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
  Annar botnfiskur 353,7 419,8 841,5 1.135,6 35,0
Flatfiskur 489,1 328,2 1.287,6 1.034,0 -19,7
Uppsjávarafli 783,5 1.657,0 3.087,3 5.865,9 90,0
  Síld 10,4 0,0 17,2 79,9 366,0
  Loðna 225,3 671,9 2.179,9 4.200,8 92,7
  Kolmunni 517,9 468,5 537,9 526,8 -2,1
  Annar uppsjávarafli 29,8 516,6 352,4 1.058,4 200,3
Skel- og krabbadýraafli 51,1 12,0 103,6 12,0 -88,4
  Rækja 49,2 12,0 97,8 12,0 -87,7
  Annar skel- og krabbad.afli 1,9 0,0 5,8 0,0 -100,0
Annar afli 0,2 0,5 2,4 1,3 -46,1
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–mars 2007  
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Mars Janúar–mars fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– mars
             
Verðmæti alls 7.911,3 9.257,9 19.207,2 24.820,2 29,2
             
  Til vinnslu innanlands 3.204,8 4.477,0 8.067,2 11.764,0 45,8
  Í gáma til útflutnings 897,3 698,1 1.720,7 2.068,7 20,2
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
  Sjófryst 2.396,2 2.135,6 5.844,8 5.950,0 1,8
  Á markað til vinnslu innanlands 1.249,8 1.740,4 3.138,9 4.514,4 43,8
  Á markað, í gáma til útflutnings 122,5 130,0 332,6 329,7 -0,9
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
  Selt úr skipi erlendis 0,0 20,3 25,6 92,8 262,7
  Fiskeldi 4,5 0,0 13,5 0,0 -100,0
  Aðrar löndunartegundir 36,3 56,5 63,8 100,7 57,7
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–mars 2007
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Mars Janúar–mars fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– mars
             
Verðmæti alls 7.911,3 9.257,9 19.207,2 24.820,2 29,2
             
  Höfuðborgarsvæði 1.613,9 1.702,3 3.634,0 4.146,0 14,1
  Suðurnes 1.532,4 2.131,8 3.627,6 5.419,9 49,4
  Vesturland 456,3 754,0 1.127,8 1.914,3 69,7
  Vestfirðir 351,4 252,9 1.052,5 1.160,2 10,2
  Norðurland vestra 638,3 516,5 1.390,1 1.449,9 4,3
  Norðurland eystra 837,3 909,7 2.481,0 2.728,3 10,0
  Austurland 804,6 1.194,1 1.987,1 3.142,6 58,2
  Suðurland 814,5 1.110,0 2.240,9 2.752,5 22,8
  Útlönd 862,7 686,7 1.666,3 2.106,5 26,4

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2007 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2006. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.