FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. JÚNÍ 2008


Aflaverðmæti 21,8 milljarðar króna

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 21,8 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2008 samanborið við 25,2 milljarða á sama tímabili 2007. Aflaverðmæti hefur dregist saman um 3,4 milljarða eða 13,5% milli ára. Aflaverðmæti marsmánaðar nam 10,0 milljörðum miðað við 9,6 milljarða í mars 2007.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok mars orðið 17,1 milljarðar sem er 6,2% samdráttur frá sama tímabili í fyrra þegar verðmæti botnfiskafla var 18,2 milljarðar. Verðmæti þorskafla í mars var 4,4 milljarðar og dróst saman um 1,1%. Aflaverðmæti ýsu nam 1,4 milljörðum, jókst um 2,4%  og verðmæti ufsaaflans var 460 milljónir sem er svipað og í mars 2007.
 
Verðmæti flatfiskafla í mars nam 378 milljónum og jókst um 15,9%. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 22,7% og nam 2,1 milljörðum. Það sem af er ári er heildarverðmæti uppsjávarafla 3,8 milljarðar, samanborið við 5,9 milljarða árið 2007. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam rúmum 1,7 milljörðum fyrstu þrjá mánuði ársins samanborið við rúma 4,2 milljarða á sama tíma árið 2007. 

Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands, var 9,4 milljarðar króna, sem er samdráttur um 2,5 milljarða eða 21,2%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 15,2%, var 3,8 milljarðar. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 2,6 milljörðum sem er 25,2% aukning.

Verðmæti afla janúar - mars 2008    
Milljónir kr.        
    Mars Janúar–mars Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 9.585,0 10.029,0 25.160,8 21.775,5 -13,5
             
Botnfiskur 7.541,8 7.533,2 18.198,0 17.070,5 -6,2
  Þorskur 4.525,0 4.473,6 10.742,3 9.431,3 -12,2
  Ýsa 1.366,5 1.399,9 3.583,6 3.956,0 10,4
  Ufsi 454,1 459,6 920,9 1.168,1 26,8
  Karfi 765,8 787,4 1.803,7 1.499,8 -16,8
  Úthafskarfi 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
  Annar botnfiskur 430,4 412,8 1.147,5 1.015,3 -11,5
Flatfiskur 325,7 377,6 1.031,8 891,4 -13,6
Uppsjávarafli 1.703,4 2.089,5 5.912,3 3.778,0 -36,1
  Síld 0,0 0,0 79,9 385,9 382,8
  Loðna 718,3 817,8 4.247,2 1.732,9 -59,2
  Kolmunni 468,5 289,7 526,8 628,1 0,0
  Annar uppsjávarafli 516,6 982,1 1.058,4 1.031,1 0,0
Skel- og krabbadýraafli 13,6 27,9 17,4 33,8 93,9
  Rækja 12,0 15,2 12,0 15,2 0,0
  Annar skel- og krabbad.afli 1,6 12,7 5,4 18,6 240,9
Annar afli 0,5 0,7 1,3 1,8 41,8
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar - mars 2008  
Milljónir kr.        
    Mars Janúar–mars Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 9.585,0 10.029,0 25.160,8 21.775,5 -13,5
             
  Til vinnslu innanlands 4.635,5 5.002,8 11.931,7 9.396,6 -21,2
  Í gáma til útflutnings 701,5 1.061,8 2.075,8 2.598,4 25,2
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 0,0 67,7 0,0
  Sjófryst 2.292,5 2.304,1 6.094,6 5.474,5 -10,2
  Á markað til vinnslu innanlands 1.738,8 1.483,2 4.513,1 3.825,9 -15,2
  Á markað, í gáma til útflutnings 133,8 77,7 334,8 244,9 -26,9
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 5,1 0,0 14,2 0,2 -
  Selt úr skipi erlendis 20,3 14,5 92,8 33,4 -64,0
  Fiskeldi 1,0 0,0 3,2 0,2 -94,4
  Aðrar löndunartegundir 56,5 84,9 100,7 133,7 32,8
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar - mars 2008
Milljónir kr.        
    Mars Janúar–mars Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 9.585,0 10.029,0 25.160,8 21.775,5 -13,5
             
  Höfuðborgarsvæði 1.740,3 1.420,9 4.182,4 3.450,6 -17,5
  Suðurnes 2.092,6 2.370,1 5.150,3 4.745,0 -7,9
  Vesturland 755,6 836,9 1.919,0 1.809,2 -5,7
  Vestfirðir 296,0 338,5 1.231,4 973,8 -20,9
  Norðurland vestra 516,6 388,7 1.450,1 1.060,4 -26,9
  Norðurland eystra 1.120,6 1.016,5 3.027,4 2.477,9 -18,2
  Austurland 1.267,5 1.405,1 3.339,3 2.617,8 -21,6
  Suðurland 1.109,7 1.194,5 2.753,5 1.985,4 -27,9
  Útlönd 686,1 1.057,7 2.107,5 2.655,5 26,0

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.