FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. JÚNÍ 2009


Aflaverðmæti 26 milljarðar króna

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 26 milljörðum króna fyrstu þrjá mánuði ársins 2009. Til samanburðar nam aflaverðmæti íslenskra skipa 22,8 milljörðum á sama tíma í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 3,1 milljarð eða 13,7% milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok mars orðið 20,9 milljarðar á árinu, en það er aukning um 16,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 18 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 11 milljarðar og jókst um 13,9% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam rúmum 4 milljörðum og dróst saman um 4,3% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam rúmum 3 milljörðum, sem er rúm 85% aukning frá fyrstu þremur mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans dróst saman um 12,8% milli ára eða í tæpan 1,1 milljarð.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 1,7 milljörðum króna í janúar til mars 2009, en það er 90,6% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst hins vegar saman um 17,1% milli ára og nam 3,2 milljörðum.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 11,4 milljörðum króna fyrstu þrjá mánuði ársins og jókst um 19,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 6,1% milli ára og var um 4 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar var 6,4 milljarðar en var 6,2 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 3,2 milljörðum, en það samsvarar 23,2% aukningu miðað við tímabilið janúar til mars 2008.

Verðmæti afla janúar-mars 2009    
Milljónir króna Breyting
  Mars Janúar–mars frá fyrra
  2008 2009 2008 2009 ári, %
Verðmæti alls 10.636 9.853 22.783 25.911 13,7
Botnfiskur 8.070 8.357 17.955 20.915 16,5
Þorskur 4.685 4.150 9.858 11.225 13,9
Ýsa 1.508 1.649 4.184 4.004 -4,3
Ufsi 516 468 1.229 1.072 -12,8
Karfi 922 1.512 1.639 3.035 85,1
Úthafskarfi 0 0 0 0 -
Annar botnfiskur 438 576 1.044 1.579 51,3
Flatfisksafli 379 628 895 1.706 90,6
Uppsjávarafli 2.154 825 3.891 3.227 -17,1
Síld 0 3 386 890 130,6
Loðna 882 0 1.846 341 -81,5
Kolmunni 290 748 628 1.144 82,2
Annar uppsjávarafli 982 75 1.031 852 -17,4
Skel- og krabbadýraafli 33 41 40 54 34,1
Rækja 20 41 21 54 162,1
Annar skel- og krabbad.afli 13 0 20 0 -99,9
Annar afli 1 1 2 9 393,7

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-mars 2009  
Milljónir króna Breyting
  Mars Janúar–mars frá fyrra
  2008 2009 2008 2009 ári, %
Verðmæti alls 10.636 9.853 22.783 25.911 13,7
Til vinnslu innanlands 5.123 4.066 9.564 11.426 19,5
Í gáma til útflutnings 1.071 1.210 2.615 3.222 23,2
Landað erlendis í bræðslu 0 11 68 83 23,2
Sjófryst 2.751 2.925 6.227 6.438 3,4
Á markað til vinnslu innanlands 1.459 1.313 3.790 4.023 6,1
Á markað, í gáma til útflutnings 102 104 278 314 12,9
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 27 2 66 4 -94,2
Selt úr skipi erlendis 14 130 33 200 498,3
Fiskeldi 3 11 8 16 94,2
  Aðrar löndunartegundir 85 81 134 186 38,8

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-mars 2009
Milljónir króna Breyting
  Mars Janúar–mars frá fyrra
  2008 2009 2008 2009 ári, %
Verðmæti alls 10.636 9.853 22.783 25.911 13,7
Höfuðborgarsvæði 1.651 1.616 3.714 4.141 11,5
Suðurnes 2.378 1.662 4.754 5.115 7,6
Vesturland 838 712 1.812 2.001 10,4
Vestfirðir 383 436 1.026 1.343 30,9
Norðurland vestra 391 748 1.063 1.295 21,8
Norðurland eystra 1.204 1.573 2.972 3.695 24,3
Austurland 1.411 936 2.626 2.597 -1,1
Suðurland 1.322 899 2.161 2.494 15,4
  Útlönd 1.057 1.271 2.655 3.229 21,6

Þessar upplýsingar byggjast á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2009 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki niðurstöðum fyrir árið 2008. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.