FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. FEBRÚAR 2007


Aflaverðmæti 70 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa¹ nam 70,5 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2006 samanborið við 63,2 milljarða á sama tímabili 2005. Aflaverðmæti hefur aukist um 7,3 milljarða eða 11,6%. Aflaverðmæti nóvembermánaðar nam 6,2 milljörðum en í nóvember í fyrra var verðmæti afla 5,7 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok nóvember orðið 52,9 milljarðar miðað við 43,5 milljarða á sama tíma árið 2005 og er aukningin því 21,6%. Verðmæti þorskafla var 24,8 milljarðar og jókst um 9,1%. Aflaverðmæti ýsu nam 10,6 milljörðum, sem er 27,9% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 58,7%, var 4,3 milljarðar.

Verðmæti flatfiskafla jókst um 3% milli ára, nam 4,8 milljörðum. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst saman um 12,1% milli ára og nam 11,9 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem minnkaði um 54% eða 2,6 milljarða, verðmæti síldar sem dróst saman um 1,2 milljarða eða 17,5% og verðmæti kolmunna, sem varð 3,6 milljarðar samanborið við tæpa 1,4 milljarða í fyrra.

Verðmæti rækju var í nóvemberlok  orðið 287 millj. kr. samanborið við 811 millj. kr. í fyrra, sem er samdráttur um 64,7%.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 26,6 milljarðar króna sem er aukning um 2,3 milljarða eða 9,3%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 30,2%, var 11,1 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 23,5 milljarðar og jókst um 4% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 7,5 milljörðum sem er 18,9% aukning.

Verðmæti afla janúar–nóvember 2006    
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Nóvember Janúar–nóvember fyrra ári í %
    2005 2006 2005 2006 Jan.– nóvember
             
Verðmæti alls 5.716,4 6.165,4 63.155,1 70.459,7 11,6
             
Botnfiskur 4.412,2 4.596,6 43.513,7 52.903,4 21,6
  Þorskur 2.413,6 2.449,4 22.764,1 24.840,9 9,1
  Ýsa 840,1 940,6 8.249,1 10.550,3 27,9
  Ufsi 436,2 374,0 2.720,9 4.318,3 58,7
  Karfi 403,2 456,6 5.129,9 6.227,8 21,4
  Úthafskarfi 0,0 0,0 0,0 0,0 -
  Annar botnfiskur 319,2 376,0 4.649,8 6.966,1 49,8
Flatfiskur 280,0 326,9 4.694,2 4.836,5 3,0
Uppsjávarafli 989,5 1.241,9 13.504,9 11.866,7 -12,1
  Síld 975,2 1.240,0 6.860,8 5.660,0 -17,5
  Loðna 0,0 0,0 4.751,6 2.179,9 -54,1
  Kolmunni 14,4 0,1 1.433,9 3.575,8 149,4
  Annar uppsjávarafli 0,0 1,8 458,6 450,9 -1,7
Skel- og krabbadýraafli 33,6 0,0 1.433,8 850,2 -40,7
  Rækja 27,7 0,0 811,3 286,7 -64,7
  Annar skel- og krabbad.afli 5,9 0,0 622,5 563,5 -9,5
Annar afli 0,9 0,0 8,5 2,9 -66,1
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–nóvember 2006  
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Nóvember Janúar–nóvember fyrra ári í %
    2005 2006 2005 2006 Jan.–nóvember
             
Verðmæti alls 5.716,4 6.165,4 63.155,1 70.459,7 11,6
             
  Til vinnslu innanlands 1.909,2 2.289,9 24.282,8 26.553,2 9,3
  Í gáma til útflutnings 540,3 681,4 6.272,5 7.458,4 18,9
  Landað erlendis í bræðslu 5,1 0,0 67,3 167,1 148,5
  Sjófryst 2.244,8 2.099,0 22.583,6 23.476,7 4,0
  Á markað til vinnslu innanlands 828,2 961,5 8.514,9 11.084,8 30,2
  Á markað, í gáma til útflutnings 175,6 121,8 1.156,6 1.387,6 20,0
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,0 0,0 0,0 0,0 -
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 69,7 97,2 39,3
  Fiskeldi 1,2 0,4 30,4 29,2 -3,9
  Aðrar löndunartegundir 12,0 11,4 177,4 205,4 15,8
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–nóvember 2006
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Nóvember Janúar–nóvember fyrra ári í %
    2005 2006 2005 2006 Jan.–nóvember
             
Verðmæti alls 5.716,4 6.165,4 63.155,1 70.459,7 11,6
             
  Höfuðborgarsvæði 1.224,1 1.116,4 11.623,4 14.424,1 24,1
  Suðurnes 1.012,2 1.164,6 10.806,8 12.112,5 12,1
  Vesturland 249,2 266,6 2.301,7 2.748,9 19,4
  Vestfirðir 381,9 384,3 3.506,4 3.906,5 11,4
  Norðurland vestra 465,7 422,6 4.591,5 5.162,1 12,4
  Norðurland eystra 786,6 753,3 10.854,6 8.814,7 -18,8
  Austurland 511,2 732,1 6.473,1 9.026,0 39,4
  Suðurland 568,0 660,3 6.876,0 6.860,4 -0,2
  Útlönd 517,6 665,2 6.121,5 7.404,5 21,0

¹Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2006 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2005. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.