FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 19. FEBRÚAR 2008


Aflaverðmæti 75,3 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 75,3 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2007 samanborið við 70,5 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur tæpum 5 milljörðum króna eða 6,7% milli ára. Aflaverðmæti í nóvember var 6 milljarðar sem er svipað og í nóvember 2006.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok nóvember orðið 56,7 milljarðar miðað við 52,9 milljarða á sama tíma árið 2006 og hefur því aukist um 7% á milli ára. Verðmæti þorskafla var 27,5 milljarðar og jókst um 10,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 13,5 milljörðum, sem er 27,7% aukning. Aflaverðmæti karfa dróst saman um rúm 10% á milli ára, var 5,6 milljarðar. Ufsaafli dróst saman að verðmæti um 8,5%, var 4 milljarðar króna fyrstu ellefu mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 17%, nam 4 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 14,9% og nam 13,7 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra. Verðmæti síldarafla var 4,9 milljarðar og dróst saman um 14,6% á milli ára. Aflaverðmæti kolmunna var 3 milljarðar samanborið við 3,6 milljarða fyrstu ellefu mánuði ársins 2006. 

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 31,1 milljarðar króna, sem er aukning um 4,5 milljarða eða 17,1% á milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 8,5%, var 12 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 22,2 milljarðar og dróst saman um 5,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 8 milljörðum sem er 7,1% aukning.

Verðmæti afla janúar–nóvember 2007    
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Nóvember Janúar–nóvember fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan – nóv
             
Verðmæti alls 6.201,4 5.951,8 70.520,3 75.256,6 6,7
             
Botnfiskur 4.608,0 4.698,3 52.938,4 56.658,7 7,0
  Þorskur 2.454,2 2.196,1 24.861,0 27.543,8 10,8
  Ýsa 943,7 1.417,6 10.560,0 13.484,8 27,7
  Ufsi 374,1 414,4 4.318,9 3.952,1 -8,5
  Karfi 459,3 318,9 6.230,8 5.601,5 -10,1
  Úthafskarfi 0,0 0,0 3.129,9 1.835,6 -41,4
  Annar botnfiskur 376,7 351,3 3.837,8 4.241,0 10,5
Flatfiskur 326,9 234,6 4.836,5 4.014,2 -17,0
Uppsjávarafli 1.264,2 1.014,0 11.889,6 13.662,0 14,9
  Síld 1.262,3 1.014,0 5.682,9 4.850,5 -14,6
  Loðna 0,0 0,0 2.179,9 4.247,2 94,8
  Kolmunni 0,1 0,0 3.575,8 3.002,8 -16,0
  Annar uppsjávarafli 1,8 0,0 450,9 1.561,5 246,3
Skel- og krabbadýraafli 2,3 4,9 852,8 920,3 7,9
  Rækja 0,0 0,0 286,7 225,6 -21,3
  Annar skel- og krabbad.afli 2,3 4,9 566,1 694,7 22,7
Annar afli 0,0 0,0 2,9 1,5 -47,7
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–nóvember 2007  
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Nóvember Janúar–nóvember fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan – nóv
             
Verðmæti alls 6.201,4 5.951,8 70.520,3 75.256,6 6,7
             
  Til vinnslu innanlands 2.296,3 2.112,3 26.574,4 31.120,7 17,1
  Í gáma til útflutnings 688,8 797,7 7.465,8 7.996,3 7,1
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 167,1 111,1 0,0
  Sjófryst 2.121,3 1.919,8 23.499,0 22.243,9 -5,3
  Á markað til vinnslu innanlands 961,4 945,1 11.082,1 12.025,1 8,5
  Á markað, í gáma til útflutnings 121,7 99,5 1.387,0 1.173,0 -15,4
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,0 51,2 0,0 172,0 0,0
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 97,2 108,3 11,5
  Fiskeldi 0,4 0,0 42,3 3,3 -92,1
  Aðrar löndunartegundir 11,4 26,3 205,4 302,9 47,5
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–nóvember 2007
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Nóvember Janúar–nóvember fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan – nóv
             
Verðmæti alls 6.201,4 5.951,8 70.520,3 75.256,6 6,7
             
  Höfuðborgarsvæði 1.116,3 1.081,6 14.421,9 13.317,1 -7,7
  Suðurnes 1.164,7 1.073,9 12.109,3 14.113,6 16,6
  Vesturland 268,8 278,3 2.751,2 3.824,9 39,0
  Vestfirðir 384,2 227,3 3.917,5 3.741,0 -4,5
  Norðurland vestra 423,0 417,9 5.164,9 4.651,0 -9,9
  Norðurland eystra 777,3 855,8 8.851,5 10.677,5 20,6
  Austurland 735,1 679,9 9.029,8 9.993,5 10,7
  Suðurland 664,1 565,5 6.866,7 6.980,8 1,7
  Útlönd 667,8 771,7 7.407,4 7.957,2 7,4

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2007 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2006. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.