FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. FEBRÚAR 2009


Aflaverðmæti 91 milljarður króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 91 milljarði króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2008 samanborið við 75,1 milljarð á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15,8 milljarða eða 21,1% á milli ára. Aflaverðmæti í nóvember nam 11,1 milljarði miðað við 6,1 milljarð í nóvember 2007.

Aflaverðmæti botnfisks frá janúar til nóvember 2008 nam 64,1 milljarð og jókst um 13,5% miðað við sama tímabili árið 2007. Verðmæti þorskafla var um 29 milljarðar og jókst um 7,3% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 14,2 milljörðum og jókst um 5,8% en verðmæti karfaaflans nam 8,3 milljörðum, sem er tæp 48% aukning frá sama tímabili árið 2007. Verðmæti ufsaaflans jókst einnig umtalsvert, það nam tæpum 5,7 milljörðum sem er 43,1% aukning miðað við fyrstu ellefu mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla frá janúar til nóvember nam 5,7 milljörðum og jókst um 42,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam tæpum 20 milljörðum, sem er 46,1% aukning miðað við fyrstu ellefu mánuði ársins 2007. Verðmæti síldaraflans frá janúar til nóvember nam tæpum 11 milljörðum sem er 122,9% aukning frá sama tímabili árið 2007. Verðmæti makríls jókst einnig mikið á milli ára, nam 4,6 milljörðum samanborið við 1,6 milljarð fyrstu ellefu mánuði ársins 2007.
 
Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 33,7 milljörðum króna sem er aukning um 9,9% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 1,1% milli ára og nam 12,2 milljörðum fyrstu ellefu mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 30,7 milljörðum og jókst um 36,8% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 11,2 milljörðum, sem er 39,1% aukning frá sama tímabili árið 2007.

Verðmæti afla janúar-nóvember 2008    
Milljónir króna Nóvember Janúar–nóvember Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.148,2 11.124,2 75.124,6 90.961,4 21,1
             
Botnfiskur 4.880,9 7.466,9 56.509,1 64.148,2 13,5
  Þorskur 2.285,1 3.417,2 27.465,0 29.463,0 7,3
  Ýsa 1.481,8 1.309,6 13.397,7 14.176,3 5,8
  Ufsi 423,3 686,6 3.976,5 5.689,9 43,1
  Karfi 334,8 1.403,8 5.628,0 8.308,7 47,6
  Úthafskarfi 0,0 0,0 1.835,6 921,3 -49,8
  Annar botnfiskur 355,9 649,8 4.206,3 5.589,0 32,9
Flatfiskur 248,4 849,1 4.028,3 5.746,7 42,7
Uppsjávarafli 1.014,0 2.798,2 13.662,0 19.956,7 46,1
  Síld 1.014,0 2.798,2 4.850,5 10.813,8 122,9
  Loðna 0,0 0,0 4.247,2 1.845,5 -56,5
  Kolmunni 0,0 0,0 3.002,8 2.718,3 -9,5
  Annar uppsjávarafli 0,0 0,0 1.561,5 4.579,1 193,3
Skel- og krabbadýraafli 4,9 7,2 923,7 1.070,8 15,9
  Rækja 0,0 5,5 229,0 265,3 15,9
  Annar skel- og krabbad.afli 4,9 1,7 694,7 805,4 15,9
Annar afli 0,0 2,8 1,5 38,9 2.477,3
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-nóvember 2008  
Milljónir króna Nóvember Janúar–nóvember Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.148,2 11.124,2 75.124,6 90.961,4 21,1
             
  Til vinnslu innanlands 2.144,2 3.407,2 30.690,3 33.735,9 9,9
  Í gáma til útflutnings 800,9 1.319,1 8.028,0 11.168,8 39,1
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 206,6 111,1 704,9 534,5
  Sjófryst 2.076,2 4.655,1 22.448,5 30.704,1 36,8
  Á markað til vinnslu innanlands 945,1 1.263,7 12.025,1 12.157,3 1,1
  Á markað, í gáma til útflutnings 99,5 232,7 1.173,0 1.555,1 32,6
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 53,7 3,7 188,9 224,0 18,6
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 108,3 33,4 -69,1
  Fiskeldi 2,4 0,4 48,6 71,2 46,5
  Aðrar löndunartegundir 26,3 35,9 302,8 606,6 100,3
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-nóvember 2008
Milljónir króna Nóvember Janúar–nóvember Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.148,2 11.124,2 75.124,6 90.961,4 21,1
             
  Höfuðborgarsvæði 1.081,8 2.069,7 13.317,4 15.174,5 13,9
  Suðurnes 1.073,9 1.746,0 13.698,8 15.851,1 15,7
  Vesturland 278,3 326,2 3.824,9 3.829,5 0,1
  Vestfirðir 344,0 634,7 3.934,2 4.310,6 9,6
  Norðurland vestra 417,8 629,3 4.650,9 5.387,3 15,8
  Norðurland eystra 935,3 1.612,0 10.761,1 12.755,2 18,5
  Austurland 679,9 1.492,5 9.999,3 13.424,6 34,3
  Suðurland 565,5 1.204,3 6.980,8 8.752,1 25,4
  Útlönd 771,7 1.409,6 7.957,2 11.476,5 44,2

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.