FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. FEBRÚAR 2010


Aflaverðmæti 106 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 106 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2009, samanborið við 91 milljarð yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 16,6% á milli ára. Aflaverðmæti í nóvember nam 10,4 milljörðum króna en var 11,3 milljarðar í nóvember 2008.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok nóvember orðið tæpir 75 milljarðar króna á árinu sem er aukning um 16,2% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam rúmum 64 milljörðum. Verðmæti þorskafla var 33,2 milljarðar og jókst um 12,4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam rúmum 14 milljörðum, sem er 1,1% aukning milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 9,1 milljarði sem er 9,4% aukning frá fyrstu ellefu mánuðum ársins 2008. Verðmæti ufsaaflans nam 6,7 milljörðum, jókst um 18% milli ára og verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 37,3% miðað við fyrstu ellefu mánuði ársins 2008.

Verðmæti flatfiskafla nam 9,2 milljörðum króna í janúar til nóvember 2009 sem er 59,1% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 3,2% milli ára og nam 20,6 milljörðum króna frá janúar til nóvember 2009.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 39,8 milljörðum króna fyrstu ellefu mánuði ársins og jókst um 17,4% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 15,9% milli ára og nam 14 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 37,6 milljörðum, samanborið við 30,7 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 12,4 milljörðum, sem er 11,1% aukning miðað við tímabilið janúar til nóvember 2008.

Verðmæti afla janúar-nóvember 2009    
Milljónir króna Nóvember Janúar–nóvember Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 11.253 10.408 91.147 106.319 16,6
Botnfiskur 7.582 7.639 64.276 74.680 16,2
Þorskur 3.472 3.616 29.532 33.197 12,4
Ýsa 1.348 1.107 14.213 14.367 1,1
Ufsi 697 1.041 5.701 6.728 18,0
Karfi 1.412 892 8.317 9.098 9,4
Úthafskarfi 0 0 921 3.614 -
Annar botnfiskur 652 984 5.592 7.676 37,3
Flatfisksafli 852 759 5.752 9.150 59,1
Uppsjávarafli 2.798 1.890 19.965 20.599 3,2
Síld 2.798 1.854 10.814 12.116 12,0
Loðna 0 0 1.846 341 -81,5
Kolmunni 0 0 2.718 2.699 -0,7
Annar uppsjávarafli 0 36 4.587 5.442 18,7
Skel- og krabbadýraafli 16 119 1.108 1.860 67,9
Rækja 14 55 300 913 203,9
Annar skel- og krabbad.afli 2 64 807 947 17,3
Annar afli 5 0 48 31 -34,9

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-nóvember 2009  
Milljónir króna Nóvember Janúar–nóvember Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 11.253 10.408 91.147 106.319 16,6
Til vinnslu innanlands 3.557 3.934 33.894 39.805 17,4
Í gáma til útflutnings 1.300 838 11.184 12.425 11,1
Landað erlendis í bræðslu 207 0 705 392 -44,4
Sjófryst 4.655 4.213 30.700 37.596 22,5
Á markað til vinnslu innanlands 1.261 1.386 12.079 14.003 15,9
Á markað, í gáma til útflutnings 233 0 1.632 1.016 -37,7
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 4 2 228 38 -83,2
Selt úr skipi erlendis 0 0 41 263 538,6
Fiskeldi 1 0 77 64 -17,8
  Aðrar löndunartegundir 36 35 607 717 18,2


Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2009 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2008 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.