FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 18. JANÚAR 2007


Aflaverðmæti 64 milljarðar króna

Aflaverðmæti íslenskra skipa¹ nam 63,9 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2006 samanborið við 57,4 milljarða á sama tímabili 2005. Aflaverðmæti hefur aukist um 6,4 milljarða eða 11,2%. Aflaverðmæti októbermánaðar nam 5,8 milljörðum en í október í fyrra var verðmæti afla 5 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok október orðið 48,2 milljarðar miðað við 39,1 milljarð á sama tíma árið 2005 og er aukningin því 23,3%. Verðmæti þorskafla var 22,3 milljarðar og jókst um 9,7%. Aflaverðmæti ýsu nam 9,6 milljörðum, sem er 29,5% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 72,2%, var 3,9 milljarðar.

Verðmæti flatfiskafla jókst um 2% milli ára, nam 4,5 milljörðum. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst saman um 17,6% milli ára og nam 10,3 milljörðum. Aflaverðmæti síldar dróst saman um 1,8 milljarða eða 30,3% og verðmæti loðnu dróst saman um 54% eða 2,6 milljarða. Aflaverðmæti kolmunna var 3,6 milljarðar samanborið við tæpa 1,4 milljarða í fyrra.

Verðmæti rækju var í októberlok  orðið 287 millj. kr. samanborið við 784 millj. kr. í fyrra, sem er samdráttur um 63,4%.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 24,2 milljarðar króna sem er aukning um 1,8 milljarða eða 8,3%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 31,7%, var 10,1 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 21 milljarður og jókst um 3,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 6,8 milljörðum sem er 18,3% aukning.

Verðmæti afla janúar–október 2006    
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Október Janúar–október fyrra ári í %
    2005 2006 2005 2006 Jan.–október
             
Verðmæti alls 5.036,7 5.842,5 57.438,8 63.874,7 11,2
             
Botnfiskur 3.800,7 4.715,5 39.101,5 48.213,1 23,3
  Þorskur 1.975,8 2.215,4 20.350,5 22.333,5 9,7
  Ýsa 865,9 1.004,5 7.408,9 9.591,5 29,5
  Ufsi 266,5 438,8 2.284,7 3.935,0 72,2
  Karfi 351,1 514,4 4.726,8 5.763,9 21,9
  Úthafskarfi 0,0 0,0 0,0 0,0 -
  Annar botnfiskur 341,4 542,3 4.330,5 6.589,2 52,2
Flatfiskur 234,1 261,5 4.414,2 4.503,9 2,0
Uppsjávarafli 965,4 864,5 12.515,3 10.314,3 -17,6
  Síld 949,0 798,8 5.885,7 4.100,5 -30,3
  Loðna 4,8 0,0 4.751,6 2.183,8 -54,0
  Kolmunni 11,6 63,8 1.419,5 3.575,7 151,9
  Annar uppsjávarafli 0,0 1,9 458,6 454,2 -1,0
Skel- og krabbadýraafli 34,2 1,0 1.400,2 840,7 -40,0
  Rækja 28,0 0,5 783,6 286,7 -63,4
  Annar skel- og krabbad.afli 6,2 0,5 616,6 554,0 -10,2
Annar afli 2,3 0,0 7,6 2,9 -61,9
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–október 2006  
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Október Janúar–október fyrra ári í %
    2005 2006 2005 2006 Jan.–október
             
Verðmæti alls 5.036,7 5.842,5 57.438,8 63.874,7 11,2
             
  Til vinnslu innanlands 1.778,1 2.130,4 22.373,6 24.223,0 8,3
  Í gáma til útflutnings 599,5 595,6 5.732,2 6.780,9 18,3
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 62,2 167,1 168,7
  Sjófryst 1.711,9 1.823,0 20.338,8 21.017,3 3,3
  Á markað til vinnslu innanlands 751,9 1.050,9 7.686,7 10.122,1 31,7
  Á markað, í gáma til útflutnings 172,4 161,8 980,9 1.262,9 28,7
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,0 0,0 0,0 0,0 -
  Selt úr skipi erlendis 15,1 71,6 69,7 97,2 39,3
  Fiskeldi 0,5 0,0 29,2 10,4 -64,5
  Aðrar löndunartegundir 7,3 9,4 165,4 194,0 17,3
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–október 2006
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Október Janúar–október fyrra ári í %
    2005 2006 2005 2006 Jan.–október
             
Verðmæti alls 5.036,7 5.842,5 57.438,8 63.874,7 11,2
             
  Höfuðborgarsvæði 786,1 1.151,5 10.399,2 13.025,3 25,3
  Suðurnes 912,7 1.124,7 9.794,5 10.929,2 11,6
  Vesturland 239,4 253,8 2.052,6 2.471,0 20,4
  Vestfirðir 333,3 404,8 3.124,6 3.507,1 12,2
  Norðurland vestra 439,5 429,6 4.125,8 4.739,6 14,9
  Norðurland eystra 722,8 715,4 10.068,1 8.053,8 -20,0
  Austurland 415,5 604,9 5.961,9 8.268,7 38,7
  Suðurland 614,9 562,6 6.308,1 6.133,6 -2,8
  Útlönd 572,4 595,1 5.603,9 6.746,4 20,4

¹Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2006 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2005. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.