FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. JANÚAR 2008


Aflaverðmæti 68,5 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 68,5 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2007 samanborið við 64,3 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 4 milljörðum króna eða 6,5% milli ára. Aflaverðmæti í október var 6 milljarðar sem er sambærilegt við október 2006.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok október orðið 51,4 milljarðar miðað við 48,3 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 6,4% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 25 milljarðar og jókst um 12%. Aflaverðmæti ýsu nam 11,8 milljörðum, sem er 23,2% aukning. Ufsaafli dróst saman að verðmæti um 10,5%, var 3,5 milljarðar króna.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 16,2%, nam 3,8 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 16,5% og nam 12,4 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra. Aflaverðmæti kolmunna var 3 milljarðar samanborið við 3,6 milljarða 2006 og verðmæti síldarafla var 3,6 milljarðar samanborið við 4,4 milljarða 2006. 

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 28,5 milljarðar króna, sem er aukning um 4,2 milljarða eða 17,4%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 9,8%, var 11,1 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 20 milljarðar og dróst saman um 6,6% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 7,2 milljörðum sem er 6,1% aukning.

Verðmæti afla janúar–október 2007    
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Október Janúar–október fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– október
             
Verðmæti alls 6.058,0 6.015,0 64.318,9 68.468,4 6,5
             
Botnfiskur 4.752,8 4.637,3 48.330,5 51.405,8 6,4
  Þorskur 2.236,2 2.034,1 22.406,8 25.075,8 11,9
  Ýsa 1.015,5 1.410,0 9.616,3 11.843,3 23,2
  Ufsi 440,5 441,1 3.944,8 3.529,7 -10,5
  Karfi 514,6 334,5 5.771,5 5.277,4 -8,6
  Úthafskarfi 107,7 4,6 3.129,9 1.835,6 -41,4
  Annar botnfiskur 438,4 413,0 3.461,2 3.844,0 11,1
Flatfiskur 266,8 249,5 4.509,7 3.777,7 -16,2
Uppsjávarafli 1.032,1 1.119,2 10.625,3 12.375,1 16,5
  Síld 966,4 1.108,5 4.420,6 3.583,3 -18,9
  Loðna 0,0 0,0 2.179,9 4.228,3 94,0
  Kolmunni 63,8 6,7 3.575,7 3.002,8 -16,0
  Annar uppsjávarafli 1,9 3,9 449,1 1.560,8 247,5
Skel- og krabbadýraafli 6,2 9,1 850,5 908,3 6,8
  Rækja 0,5 4,4 286,7 226,7 -20,9
  Annar skel- og krabbad.afli 5,8 4,7 563,8 681,6 20,9
Annar afli 0,0 0,0 2,9 1,5 -47,9
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–október 2007  
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Október Janúar–október fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– október
             
Verðmæti alls 6.058,0 6.015,0 64.318,9 68.468,4 6,5
             
  Til vinnslu innanlands 2.177,6 2.004,1 24.278,1 28.501,9 17,4
  Í gáma til útflutnings 595,8 744,1 6.777,1 7.192,0 6,1
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 16,6 167,1 111,1 0,0
  Sjófryst 1.990,3 2.152,0 21.377,8 19.968,8 -6,6
  Á markað til vinnslu innanlands 1.050,7 874,4 10.120,6 11.111,9 9,8
  Á markað, í gáma til útflutnings 161,8 153,5 1.265,3 1.073,5 -15,2
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,0 53,4 0,0 120,8 0,0
  Selt úr skipi erlendis 71,6 0,0 97,2 108,3 11,5
  Fiskeldi 0,8 0,0 41,9 3,3 -92,0
  Aðrar löndunartegundir 9,4 16,9 193,9 276,7 42,7
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–október 2007
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Október Janúar–október fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– október
             
Verðmæti alls 6.058,0 6.015,0 64.318,9 68.468,4 6,5
             
  Höfuðborgarsvæði 1.294,3 1.077,3 13.305,6 12.236,7 -8,0
  Suðurnes 1.136,8 1.072,2 10.944,6 13.316,8 21,7
  Vesturland 260,5 202,2 2.482,4 3.536,9 42,5
  Vestfirðir 404,5 371,5 3.533,2 3.405,6 -3,6
  Norðurland vestra 430,4 424,9 4.741,9 4.233,1 -10,7
  Norðurland eystra 727,5 908,7 8.074,2 9.396,0 16,4
  Austurland 605,3 724,7 8.294,7 8.838,7 6,6
  Suðurland 606,3 505,5 6.202,6 6.324,2 2,0
  Útlönd 592,4 728,0 6.739,6 7.180,4 6,5

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2007 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2006. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.