FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 25. JANÚAR 2010


Aflaverðmæti 95 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 95 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2009, samanborið við tæpa 80 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 19,2% á milli ára. Aflaverðmæti í októbermánuði nam 9,7 milljörðum króna miðað við 9,4 milljarða í október 2008.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok október orðið tæpir 67 milljarðar króna á árinu sem er aukning um 17,6% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 57 milljörðum. Verðmæti þorskafla var 29,4 milljarðar og jókst um 12,7% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 13 milljörðum, sem er 2,4% aukning milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 8,2 milljörðum, sem er 18,6% aukning frá fyrstu tíu mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 13,4% milli ára í 5,7 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 34,5% miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2008.

Verðmæti flatfiskafla nam 8,4 milljörðum króna í janúar til október 2009 sem er 71,1% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 9,2% milli ára og nam tæpum 19 milljörðum króna frá janúar til október 2009. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 10,4 milljörðum samanborið við 8 milljarða árið 2008 og makríl að verðmæti 4,6 milljarðar, samanborið við 3,5 milljarða fyrir sama tímabil árið 2008.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 35,4 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði ársins og jókst um 16,7% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 15,6% milli ára og nam 12,5 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 33,4 milljörðum, samanborið við rúma 26 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 11,6 milljörðum, sem er 16,7% aukning miðað við tímabilið janúar til október 2008.

Verðmæti afla janúar-október 2009    
Milljónir króna Október Janúar–október Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 9.431 9.671 79.894 95.243 19,2
Botnfiskur 7.013 7.591 56.694 66.674 17,6
Þorskur 2.528 3.258 26.060 29.380 12,7
Ýsa 1.278 1.330 12.865 13.173 2,4
Ufsi 570 847 5.003 5.675 13,4
Karfi 1.830 1.156 6.905 8.187 18,6
Úthafskarfi 0 0 921 3.614 -
Annar botnfiskur 807 1.000 4.939 6.645 34,5
Flatfisksafli 378 434 4.900 8.382 71,1
Uppsjávarafli 2.006 1.531 17.166 18.751 9,2
Síld 1.993 1.528 8.016 10.352 29,1
Loðna 0 0 1.846 341 -81,5
Kolmunni 10 2 2.718 2.635 -3,1
Annar uppsjávarafli 3 1 4.587 5.424 18,2
Skel- og krabbadýraafli 25 112 1.092 1.405 28,7
Rækja 8 28 287 542 89,1
Annar skel- og krabbad.afli 17 84 805 863 7,2
Annar afli 10 3 43 31 -28,6

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-október 2009  
Milljónir króna Október Janúar–október Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 9.431 9.671 79.894 95.243 19,2
Til vinnslu innanlands 2.752 2.975 30.337 35.398 16,7
Í gáma til útflutnings 1.390 1.092 9.884 11.587 17,2
Landað erlendis í bræðslu 199 0 498 327 -34,3
Sjófryst 3.604 4.118 26.045 33.383 28,2
Á markað til vinnslu innanlands 1.183 1.449 10.818 12.502 15,6
Á markað, í gáma til útflutnings 249 2 1.399 1.016 -27,4
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 12 0 225 36 -83,9
Selt úr skipi erlendis 0 0 41 263 538,6
Fiskeldi 3 0 76 54 -29,1
  Aðrar löndunartegundir 40 35 571 676 18,4


Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2009 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2008 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.