Aflaverðmæti 58 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa¹ nam 57,9 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2006 samanborið við 52,4 milljarða á sama tímabili 2005. Aflaverðmæti hefur aukist um 5,5 milljarða eða 10,6%. Aflaverðmæti septembermánaðar nam 5,6 milljörðum en í september í fyrra var verðmæti afla 4,7 milljarðar.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok september orðið 43,4 milljarðar miðað við 35,3 milljarða á sama tíma árið 2005 og er því um 23,0% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 20,1 milljarður og jókst um 9,3%. Aflaverðmæti ýsu nam 8,6 milljörðum, sem er 31,1% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 72,7%, var 3,5 milljarðar.
Verðmæti flatfiskafla jókst um 1,5% milli ára, nam 4,2 milljörðum. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst saman um 18,2% milli ára og nam 9,4 milljörðum. Aflaverðmæti síldar dróst saman um 1,6 milljarða eða 33,1% og verðmæti loðnu dróst saman um 54% eða 2,6 milljarða. Aflaverðmæti kolmunna var 3,5 milljarðar samanborið við tæpa 1,4 milljarða í fyrra.
Verðmæti rækju í ágústlok var 286 millj. kr. samanborið við 756 millj. kr. í fyrra, sem er samdráttur um 62,1%.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 22,1 milljarðar króna sem er aukning um 1,5 milljarða eða 7,4%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 30,9%, var 9,1 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 19,1 milljarðar og jókst um 2,6% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 6,2 milljörðum sem er 20% aukning.
Afli janúar til september 2006 reiknaður á föstu verði var 5,3% minni en sömu mánuði í fyrra. Verð á sjávarafla í íslenskum krónum var hins vegar 20,7% hærra í janúar-september 2006 en á sama tímabili 2005. Þá hækkaði gengisvísitala íslensku krónunnar (krónan veiktist) um 9,9% milli þessara tímabila.
Verðmæti afla janúar–september 2006 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
September | Janúar–september | fyrra ári í % | ||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | Jan.–september | ||
Verðmæti alls | 4.701,7 | 5.588,5 | 52.402,1 | 57.944,4 | 10,6 | |
Botnfiskur | 3.378,1 | 4.133,5 | 35.300,8 | 43.410,0 | 23,0 | |
Þorskur | 1.691,4 | 1.991,4 | 18.374,7 | 20.080,7 | 9,3 | |
Ýsa | 736,7 | 885,6 | 6.543,1 | 8.576,7 | 31,1 | |
Ufsi | 228,4 | 291,4 | 2.018,2 | 3.485,4 | 72,7 | |
Karfi | 380,8 | 472,4 | 4.375,6 | 5.248,0 | 19,9 | |
Úthafskarfi | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 | - | |
Annar botnfiskur | 340,9 | 492,6 | 3.989,1 | 6.019,2 | 50,9 | |
Flatfiskur | 378,0 | 338,7 | 4.180,1 | 4.242,2 | 1,5 | |
Uppsjávarafli | 822,6 | 1.091,9 | 11.549,9 | 9.449,7 | -18,2 | |
Síld | 822,3 | 1.091,9 | 4.936,6 | 3.301,7 | -33,1 | |
Loðna | 0,0 | 0,0 | 4.746,8 | 2.183,8 | -54,0 | |
Kolmunni | 0,2 | 0,0 | 1.407,8 | 3.511,9 | 149,5 | |
Annar uppsjávarafli | 0,0 | 0,0 | 458,6 | 452,2 | -1,4 | |
Skel- og krabbadýraafli | 121,9 | 24,5 | 1.366,0 | 839,7 | -38,5 | |
Rækja | 87,8 | 7,5 | 755,6 | 286,2 | -62,1 | |
Annar skel- og krabbad.afli | 34,1 | 17,0 | 610,4 | 553,5 | -9,3 | |
Annar afli | 1,1 | 0,0 | 5,3 | 2,8 | -47,3 |
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–september 2006 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
September | Janúar–september | fyrra ári í % | ||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | Jan.–september | ||
Verðmæti alls | 4.701,7 | 5.588,5 | 52.402,1 | 57.944,4 | 10,6 | |
Til vinnslu innanlands | 1.415,4 | 2.334,6 | 20.595,5 | 22.115,1 | 7,4 | |
Í gáma til útflutnings | 527,7 | 587,6 | 5.132,7 | 6.158,7 | 20,0 | |
Landað erlendis í bræðslu | 0,0 | 0,0 | 62,2 | 167,1 | 168,7 | |
Sjófryst | 2.048,0 | 1.611,4 | 18.626,9 | 19.109,5 | 2,6 | |
Á markað til vinnslu innanlands | 591,0 | 890,6 | 6.934,8 | 9.081,0 | 30,9 | |
Á markað, í gáma til útflutnings | 110,2 | 153,5 | 808,6 | 1.092,8 | 35,2 | |
Sjófryst til endurvinnslu innanl. | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 | - | |
Selt úr skipi erlendis | 0,0 | 0,0 | 54,6 | 25,6 | -53,2 | |
Fiskeldi | 1,4 | 0,0 | 28,7 | 10,4 | -63,8 | |
Aðrar löndunartegundir | 7,8 | 10,8 | 158,1 | 184,2 | 16,5 |
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–september 2006 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
September | Janúar–september | fyrra ári í % | ||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | Jan.–september | ||
Verðmæti alls | 4.701,7 | 5.588,5 | 52.402,1 | 57.944,4 | 10,6 | |
Höfuðborgarsvæði | 1.011,7 | 1.097,7 | 9.613,1 | 11.873,8 | 23,5 | |
Suðurnes | 766,9 | 985,7 | 8.881,8 | 9.800,9 | 10,3 | |
Vesturland | 164,2 | 199,6 | 1.813,2 | 2.217,1 | 22,3 | |
Vestfirðir | 298,5 | 386,4 | 2.791,3 | 3.101,6 | 11,1 | |
Norðurland vestra | 292,7 | 460,8 | 3.686,3 | 4.310,0 | 16,9 | |
Norðurland eystra | 851,2 | 653,2 | 9.345,2 | 7.254,8 | -22,4 | |
Austurland | 271,2 | 850,9 | 5.546,4 | 7.663,8 | 38,2 | |
Suðurland | 555,2 | 393,9 | 5.693,1 | 5.571,0 | -2,1 | |
Útlönd | 490,1 | 560,3 | 5.031,6 | 6.151,4 | 22,3 |
¹Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2006 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2005. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.
Talnaefni