FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 18. DESEMBER 2007


Aflaverðmæti 62 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 62,3 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2007 samanborið við 58,3 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 4 milljörðum króna eða 6,9% milli ára. Aflaverðmæti septembermánaðar var 4,3 milljarðar og lækkar um 1,6 milljarð frá  september  í fyrra.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok september orðið 46,7 milljarðar miðað við 43,6 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 7,1% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 23 milljarðar og jókst um 14%. Aflaverðmæti ýsu nam 10,4 milljörðum, sem er 21,1% aukning, og ufsaaflinn dróst saman að verðmæti um 12,1%, var 3,1 milljarðar króna.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 17,1%, nam 3,5 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 16,8% og nam 11,2 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra, kolmunna að verðmæti 3 milljarðar samanborið við 3,5 milljarða 2006 og síld að verðmæti 2,4 milljarðar samanborið við 3,5 milljarða 2006. 

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 26,5 milljarðar króna, sem er aukning um 4,4 milljarða eða 19,9%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 12,9%, var 10,2 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 17,7 milljarðar og dróst saman um 8,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 6,4 milljörðum sem er 4,3% aukning.

Verðmæti afla janúar–september 2007    
Milljónir kr.       Breytingar frá
    September Janúar–september fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– september
             
Verðmæti alls 5.878,2 4.326,6 58.260,9 62.309,3 6,9
             
Botnfiskur 4.266,0 3.606,0 43.577,7 46.683,8 7,1
  Þorskur 2.049,2 1.527,5 20.170,6 22.992,5 14,0
  Ýsa 908,7 1.014,0 8.600,9 10.415,6 21,1
  Ufsi 310,0 231,1 3.504,4 3.080,8 -12,1
  Karfi 481,3 291,6 5.256,9 4.940,1 -6,0
  Úthafskarfi 123,0 107,0 3.022,2 1.831,0 -39,4
  Annar botnfiskur 393,8 435,0 3.022,7 3.423,7 13,3
Flatfiskur 339,3 209,4 4.242,8 3.517,7 -17,1
Uppsjávarafli 1.243,8 456,3 9.593,2 11.209,0 16,8
  Síld 1.243,8 440,3 3.454,2 2.427,8 -29,7
  Loðna 0,0 0,0 2.179,9 4.228,3 94,0
  Kolmunni 0,0 10,0 3.511,9 2.996,0 -14,7
  Annar uppsjávarafli 0,0 6,0 447,1 1.556,8 248,2
Skel- og krabbadýraafli 29,1 54,8 844,3 897,4 6,3
  Rækja 7,5 17,2 286,2 220,7 -22,9
  Annar skel- og krabbad.afli 21,6 37,6 558,1 676,7 21,3
Annar afli 0,0 0,0 2,9 1,5 -47,9
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–september 2007  
Milljónir kr.       Breytingar frá
    September Janúar–september fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– september
             
Verðmæti alls 5.878,2 4.326,6 58.260,9 62.309,3 6,9
             
  Til vinnslu innanlands 2.345,2 1.458,4 22.100,4 26.491,6 19,9
  Í gáma til útflutnings 591,2 662,9 6.181,3 6.447,9 4,3
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 89,8 167,1 94,5 0,0
  Sjófryst 1.889,4 1.181,1 19.387,5 17.747,0 -8,5
  Á markað til vinnslu innanlands 887,7 806,1 9.069,9 10.236,9 12,9
  Á markað, í gáma til útflutnings 153,5 120,5 1.103,5 920,0 -16,6
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 25,6 108,3 323,3
  Fiskeldi 0,4 0,0 41,0 3,3 -91,8
  Aðrar löndunartegundir 10,8 7,7 184,6 259,8 40,7
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–september 2007
Milljónir kr.       Breytingar frá
    September Janúar–september fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– september
             
Verðmæti alls 5.878,2 4.326,6 58.260,9 62.309,3 6,9
             
  Höfuðborgarsvæði 1.234,9 876,7 12.011,3 11.159,1 -7,1
  Suðurnes 992,1 870,5 9.807,9 12.240,2 24,8
  Vesturland 204,3 200,6 2.221,8 3.326,5 49,7
  Vestfirðir 387,7 209,6 3.128,7 3.033,9 -3,0
  Norðurland vestra 462,1 240,1 4.311,5 3.814,6 -11,5
  Norðurland eystra 740,5 510,0 7.346,7 8.397,0 14,3
  Austurland 881,8 365,6 7.689,5 8.113,8 5,5
  Suðurland 418,7 326,6 5.596,3 5.771,6 3,1
  Útlönd 556,1 726,8 6.147,2 6.452,5 5,0

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2007 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2006. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.