FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 23. DESEMBER 2009


Aflaverðmæti 85 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 85 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2009, samanborið við rúma 70 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 21% á milli ára. Aflaverðmæti í septembermánuði nam 9,5 milljörðum króna miðað við 7 milljarða í september 2008.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok september orðið 59 milljarðar króna á árinu sem er aukning um 19,1% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 50 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 26,5 milljarðar og jókst um 12,5% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 12 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 7 milljörðum, sem er 38,7% aukning frá fyrstu níu mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 8,3% milli ára í 4,8 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 35,8% miðað við fyrstu níu mánuði ársins 2008.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 8 milljörðum króna í janúar til september 2009 sem er 75,2% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 12,4% milli ára og nam rúmum 17 milljörðum króna frá janúar til september 2009. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 8,8 milljörðum samanborið við 6 milljarða í fyrra og makríl að verðmæti 5,2 milljarðar samanborið við 4,5 milljarða 2008.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam um 32,6 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins og jókst um 18,2% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 13,3% milli ára og nam tæpum 11 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 29 milljörðum, samanborið við rúma 22 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 10,5 milljörðum, sem er 23,5% aukning miðað við tímabilið janúar til september 2008.

Verðmæti afla janúar-september 2009    
Milljónir króna September Janúar–september Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 7.119 9.464 70.463 85.421 21,2
Botnfiskur 5.065 6.681 49.681 59.153 19,1
Þorskur 2.189 3.015 23.532 26.472 12,5
Ýsa 1.241 1.276 11.587 11.796 1,8
Ufsi 401 536 4.434 4.802 8,3
Karfi 621 921 5.075 7.038 38,7
Úthafskarfi 0 0 921 3.434 -
Annar botnfiskur 614 932 4.132 5.612 35,8
Flatfisksafli 451 716 4.521 7.922 75,2
Uppsjávarafli 1.496 1.880 15.161 17.042 12,4
Síld 1.289 1.609 6.023 8.817 46,4
Loðna 0 0 1.846 341 -81,5
Kolmunni 8 36 2.708 2.633 -2,8
Annar uppsjávarafli 200 234 4.584 5.251 14,5
Skel- og krabbadýraafli 99 186 1.067 1.291 21,0
Rækja 33 81 279 514 84,2
Annar skel- og krabbad.afli 65 105 788 777 -1,4
Annar afli 8 2 33 13 -59,9

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-september 2009  
Milljónir króna September Janúar–september Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 7.119 9.464 70.463 85.421 21,2
Til vinnslu innanlands 2.256 3.697 27.585 32.606 18,2
Í gáma til útflutnings 978 1.197 8.494 10.487 23,5
Landað erlendis í bræðslu 74 0 299 327 9,3
Sjófryst 2.536 3.006 22.441 29.085 29,6
Á markað til vinnslu innanlands 959 1.351 9.636 10.917 13,3
Á markað, í gáma til útflutnings 256 180 1.150 1.014 -11,8
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 27 0 213 36 -83,1
Selt úr skipi erlendis 0 0 41 263 538,6
Fiskeldi 1 0 73 52 -29,2
  Aðrar löndunartegundir 34 33 531 634 19,4

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2009 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2008 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.