FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 08. MARS 2013

Landsframleiðsla á 4. ársfjórðungi 2012 jókst um 1,4% borið saman við 4. ársfjórðung 2011. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, saman um 2,6%. Einkaneysla jókst um 2,7% og samneysla um 0,5% en fjárfesting dróst saman um 23%. Útflutningur jókst um 1,8% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 5,6%.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,5% milli 3. og 4. ársfjórðungs 2012. Þar af mældist 1,5% aukning í einkaneyslu en þjóðarútgjöld drógust saman um 0,2% á ársfjórðungnum.

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2012 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2012)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.