Hagstofan birtir nú uppfærðar niðurstöður tekjuskiptingaruppgjörs fyrir alla fimm megingeira íslenska hagkerfisins yfir árin 2000 til 2013. Uppfærslan lýtur að skiptingu vergs rekstrarafgangs milli geira og tekjutilfærslum milli geira vegna lífeyrisskuldbindinga. Þá hafa aðföng fyrir árin 2008-2011 einnig verið leiðrétt.
Meginniðurstöður innlendra geira úr tekjuskiptingaruppgjörinu árið 2013 | |||||
S. 11 | S. 12 | S. 13 | S. 14 | S. 15 | |
Verðlag hvers árs, milljónir króna | Fyrirtæki önnur | ||||
en fjármála- | Fjármála- | Hið | Félaga- | ||
stofnanir | stofnanir | opinbera | Heimili | samtök | |
Vinnsluvirði | 1.039.980 | 123.392 | 294.278 | 181.337 | 36.766 |
Vergur rekstrarafgangur | 414.640 | 44.477 | 52.088 | 139.582 | -3.519 |
Vergar þjóðartekjur | 301.769 | 83.386 | 264.298 | 1.205.786 | -3.502 |
Vergar ráðstöfunartekjur | 264.917 | 180.292 | 522.774 | 866.208 | 1.383 |
Leiðréttar vergar ráðstöfunartekjur | 264.917 | 180.292 | 232.531 | 1.193.352 | -35.518 |
Vergur sparnaður | 264.917 | 64.105 | 64.576 | 32.297 | -35.518 |
Afskrift fjármunaeignar | 178.962 | 5.661 | 53.941 | 63.765 | 6.035 |
Hreinn sparnaður | 85.955 | 58.444 | 10.636 | -31.468 | -41.552 |
Aðferðafræðilegar breytingar uppgjörsins eru nánar tiltekið eftirfarandi:
- Skipting á vergum rekstrarafgangi á milli geiranna fimm var í áður birtum tölum byggð beint á niðurstöðum framleiðsluuppgjörs, eftir fimm stafa ISAT2008 flokkun. Til betri samsvörunar innan tekjuskiptingaruppgjörsins er vergur rekstrarafgangur (ásamt vergum afgangi af eigin rekstri fyrir heimilageirann) nú reiknaður fyrir hvern geira sem:
B.1g Verg landsframleiðsla
– D.1 Laun og launatengd gjöld
– D.2 Skattar á framleiðslu og innflutning
+ D.39 Aðrir framleiðslustyrkir en styrkir á vöru og þjónustu
- Í reikningi yfir tekjutilfærslur milli geira hagkerfisins hefur flokkun tryggingagjalda frá heimilageiranum (S.14) til fjármálastofnanna (S.12) verið endurskoðuð með hliðsjón af breytingum frá ESA 1995 staðlinum til ESA 2010. Sú endurskoðun felst í breyttri framsetningu á fjárfestingatekjum lífeyrissjóðakerfisins ásamt rekstrargjöldum þess. Endurskoðunin kemur einnig fram í reikningi yfir skiptingu frumtekna þar sem fjárfestingatekjur lífeyrissjóðskerfisins eru tekjufærðar til S.14 og gjaldfærðar á S.12.
Nánari greining á uppgjörinu verður birt í Hagtíðindahefti í júní næstkomandi, samhliða birtingu niðurstaðna fyrir árið 2014. Vert er að vekja athygli á því að uppgjörið er nú einnig aðgengilegt í gagnagrunni evrópsku Hagstofunnar (Eurostat) á eftirfarandi slóð: http://ec.europa.eu/eurostat/data/database