Bifreiðatölur leiðréttar fyrir tímabilið janúar-nóvember 2009
Í Hagvísum sem gefnir voru út 3. desember síðastliðinn voru birtar rangar tölur um nýskráningar bíla í janúar-nóvember. Nýskráningar bíla á þessu tímabili voru 2.696, sem er 78,0% fækkun frá nóvember í fyrra. Síðastliðna 12 mánuði, til loka nóvember, voru nýskráningar bíla 2.773 en það er 79,7% fækkun frá fyrra tólf mánaða tímabili.
Nýir Hagvísar hafa verið birtir á vefnum og talnaefni uppfært.
Hagvísar í desember - Hagtíðindi
Talnaefni