Landsframleiðsla á 1. ársfjórðungi 2013 jókst um 0,8% borið saman við 1. ársfjórðung 2012. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld, sem endurspegla innlenda eftirspurn, saman um 4%. Einkaneysla jókst um 0,8% og samneysla um 0,9% en fjárfesting dróst saman um 19,9%. Útflutningur jókst um 2,3% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 6,3%.
Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 4,6% að raungildi milli 4. ársfjórðungs 2012 og 1. ársfjórðungs 2013. Þar af mældist 4% aukning í þjóðarútgjöldum, sem skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða á 1. ársfjórðungi.
Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2013 - Hagtíðindi
Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2013)