FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 12. MARS 2025

Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu ársins 2024 er áætlaður 8,1% samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum ferðaþjónustureikninga samanborið við 8,2% árið á undan. Á tímabilinu 2016-2019, fyrir kórónuveirufaraldurinn, nam hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu að jafnaði 8,2%.

Útgáfa ferðaþjónustureikninga með ítarlegri niðurstöðum er fyrirhuguð í apríl næstkomandi.

Um gögnin
Ferðaþjónustureikningar (e. tourism satellite accounts) eru hliðarreikningar þjóðhagsreikninga og er ætlað að leggja mat á hlut ferðaþjónustunnar í hagkerfinu. Með ferðaþjónustu er átt við þjónustu við bæði innlenda og erlenda ferðamenn hér á landi. Þar sem ferðaþjónustureikningar byggja á niðurstöðum ráðstöfunaruppgjörs og framleiðsluuppgjörs er rétt að árétta að endurskoðanir sem gerðar eru í þeim uppgjörum ná einnig til ferðaþjónustureikninga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.