FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 28. FEBRÚAR 2022

Samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum ferðaþjónustureikninga nam áætlaður hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu ársins 2021 5% samanborið við 3,9% árið 2020. Á tímabilinu 2016 til 2019, fyrir kórónuveirufaraldurinn, nam hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu að jafnaði 8,1%.

Erlendum gistinóttum fjölgaði um 67%
Helstu hagvísar benda til aukinna umsvifa í ferðaþjónustu á árinu 2021 samanborið við árið 2020. Gistinætur á öllum tegundum skráðra gististaða voru 5,1 milljón á árinu 2021 samanborið við 3,3 milljónir á árinu 2020 sem samsvarar aukningu upp á 55%. Erlendum gistinóttum fjölgaði um 67% á milli ára en þær voru 3 milljónir á árinu 2021. Komur erlendra farþega hingað til lands um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 690 þúsund árið 2021 sem er aukning um 44% frá 2020.

Um gögnin
Ferðaþjónustureikningar (e. tourism satellite accounts) eru hliðarreikningar þjóðhagsreikninga og er ætlað að leggja mat á hlut ferðaþjónustunnar í hagkerfinu. Með ferðaþjónustu er átt við þjónustu við bæði innlenda og erlenda ferðamenn hér á landi. Útgáfa ferðaþjónustureikninga, með ítarlegri niðurstöðum, er áætluð í júní næstkomandi.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.