FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 06. SEPTEMBER 2013

Landsframleiðsla á fyrstu sex mánuðum ársins 2013 jókst um 2,2% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2012. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, saman um 1%. Einkaneysla jókst um 1,2% og samneysla um 1,1%. Fjárfesting dróst hins vegar saman um 13%. Útflutningur jókst um 1,1% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 4,6%.

Landsframleiðsla á 2. ársfjórðungi 2013, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 4,2% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 6,5% frá 1. ársfjórðungi 2013.

Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2013 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2013)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.