Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar þar sem birtar eru áætlanir Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2005. Þar kemur meðal annars fram að landsframleiðslan á árinu 2005 varð 996 milljarðar króna og óx að raungildi um 5,5% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 8,2% vaxtar á árinu 2004. Vegna batnandi viðskiptakjara og minni nettó vaxta- og arðgreiðslna til útlanda uxu þjóðartekjur nokkru meira eða um 6,7%.
Vöxturinn einkenndist af miklum vexti einkaneyslu sem óx um 11,9% og fjárfestingar sem óx um 34,5%. Þjóðarútgjöldin uxu því talsvert umfram landsframleiðsluna eða um 14,9% og leiddi það til verulegs halla á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd.
Samhliða þessum áætlunum hefur Hagstofan tekið upp nýjar aðferðir við mat á reiknaðri bankaþjónustu.
Landsframleiðsla 2005 - áætlun - Hagtíðindi
Talnaefni