FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 14. MARS 2007

Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar. Þar sem birtar eru áætlanir  Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2006. Þar kemur meðal annars fram að landsframleiðslan á árinu 2006 varð 1.142 milljarðar króna og jókst að raungildi um 2,6% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 7,2% vaxtar á árinu 2005.

Vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári má, líkt og undanfarin þrjú ár, öðru fremur rekja til aukinnar einkaneyslu og fjárfestingar en á móti vegur aukinn innflutningur, langt umfram aukningu á útflutningi.

Laun- og fjármagnsgjöld til útlanda jukust mun meira en nam aukningu launa- og fjármagnstekna frá útlöndum og þrátt fyrir jákvæða þróun viðskiptakjara dragast þjóðartekjur saman um 1,7%

Landsframleiðsla 2006- áætlun - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.