FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 12. SEPTEMBER 2007
Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar. Þar eru birtar bráðabirgðatölur Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2006. Fram kemur meðal annars að landsframleiðslan á árinu 2006 varð 1.163 milljarðar króna og jókst að raungildi um 4,2% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 7,1% vaxtar á árinu 2005.

Vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári má, líkt og undanfarin þrjú ár, öðru fremur rekja til aukinnar einkaneyslu og fjárfestingar en á móti vegur aukinn innflutningur, langt umfram aukningu á útflutningi.

Laun- og fjármagnsgjöld til útlanda jukust mun meira en nam aukningu launa- og fjármagnstekna frá útlöndum og þrátt fyrir jákvæða þróun viðskiptakjara aukast þjóðartekjur á árinu 2006 mun minna en landsframleiðslan eða um 1,2% samanborið við 7,9% vöxt árið áður.

Landsframleiðslan 2006 - bráðabirgðatölur  - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.