Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar, þar sem birtar eru áætlanir Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2007. Fram kemur meðal annars að landsframleiðslan á árinu 2007 varð 1.279 milljarðar króna og jókst að raungildi um 3,8% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 4,4% vaxtar á árinu 2006.
Vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári má öðru fremur rekja til verulegs vaxtar útflutnings og aukningar einkaneyslu. Á sama tíma dróst fjárfesting saman og einnig vöruinnflutningur. Þessi þróun er allt önnur en á undanförnum fjórum árum þegar hagvöxtur var drifinn áfram af einkaneyslu og fjárfestingu.
Laun- og fjármagnstekjur frá útlöndum jukust meira en nam aukningu launa- og fjármagnsgjalda til útlanda. Þessi aukning og óbreytt viðskiptakjör leiddu til þess að þjóðartekjur jukust á árinu 2007 mun meira en landsframleiðslan eða um 6,7% samanborið við 1,6% vöxt árið áður.
Landsframleiðslan 2007 - Hagtíðindi
Talnaefni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.