FRÉTT
ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR
04. SEPTEMBER 2009
Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar, þar sem birtar eru endurskoðaðar tölur Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2008. Fram kemur meðal annars að landsframleiðslan á árinu 2008 varð 1.476 milljarðar króna og jókst að raungildi um 1,3% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 5,6% vaxtar á árinu 2007.
Vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári má öðru fremur rekja til útflutnings, sem jókst um 7% og skýrist sú aukning að stórum hluta af mikilli aukningu á útflutningi afurða stóriðju. Á sama tíma dróst innflutningur saman um 18%. Þjóðarútgjöld drógust saman um 8,6%
Landsframleiðslan 2008 - endurskoðun - Hagtíðindi
Talnaefni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma
528 1100
,
netfang
upplysingar@hagstofa.is
Deila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni.
Vinsamlegast getið heimildar.