FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 11. SEPTEMBER 2015

Landsframleiðsla jókst að raungildi um 1,8% á árinu 2014 samkvæmt endurmati á niðurstöðum þjóðhagsreikninga. Neysla og fjárfesting dró hagvöxtinn áfram en þjóðarútgjöld jukust um 5,2% á föstu verðlagi.

Einkaneysla jókst um 3,1%, samneysla um 1,8% og aukning fjárfestingar nam 15,4% mælt á föstu verðlagi. Útflutningur jókst um 3,1% á sama tíma og innflutningur jókst um 9,8% þannig að þótt verulegur afgangur yrði af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða  124,5 milljarðar króna, dró utanríkisverslun úr hagvexti.

Vöxtur fjárfestinga hefur ekki verið meiri  frá árinu 2006, en hún jókst árið 2014 um  15,4%, þar af var aukning íbúðafjárfestingar 14,8% og fjárfesting atvinnuveganna 16,3%.

Halli á launa- og fjáreignatekjum frá útlöndum var fremur lítill, annað árið í röð, samkvæmt niðurstöðum Seðlabanka. Það ásamt  afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum leiddi til jákvæðs viðskiptajafnaðar á árinu 2014. Hann nam rúmum 83,5 milljörðum króna, 4,2% af landsframleiðslu á árinu. Til samanburðar var viðskiptajöfnuður jákvæður um tæpa 124 milljarða árið 2013 á verðlagi þess árs.

Viðskiptakjör bötnuðu um 1,8% á árinu 2014 sem ásamt jákvæðum viðskiptajöfnuði varð til þess að þjóðartekjur jukust umfram vöxt landsframleiðslu eða um 3,0%. Árið 2013 jukust þjóðartekjur aftur á móti um 11,9%.

Landsframleiðslan 2014  - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.