Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 1. ársfjórðungi 2008. Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 1,1% að raungildi á 1. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður. Þjóðarútgjöld jukust um 1,2%, útflutningur um 0,2% og innflutningur um 0,4%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 3,7% á milli 1. fjórðungs ársins 2008 og 4. ársfjórðungs 2007 en óx um 1,2% frá sama tímabili árið áður.
Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2008 - Hagtíðindi
Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2008)