FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 08. JÚNÍ 2017

Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2017 jókst að raungildi um 5% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 3,2%. Einkaneysla jókst um 7%, samneysla um 1,8% og fjárfesting um 2,5%. Útflutningur jókst um 5,4% á sama tíma og innflutningur jókst um 3,1%. Helstu drifkraftar hagvaxtar er einkaneysla ásamt utanríkisviðskiptum. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 1,9% milli 4. ársfjórðungi 2016 og 1. ársfjórðungs 2017.

Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2017 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2017)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.