Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 2. ársfjórðungi 2008. Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 5% að raungildi á 2. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður. Þjóðarútgjöld drógust saman um 8% og innflutningur um 12% en útflutningur óx um tæp 25%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla óx um 4,9% á 2. ársfjórðungi þessa árs frá fyrri ársfjórðungi en dróst saman um 1,4% á 1. ársfjórðungi.
Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2008 - Hagtíðindi
Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2008)