FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 13. DESEMBER 2006

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 3. ársfjórðungi 2006.  Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 0,8% að raungildi á 3. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður.  Þjóðarútgjöld jukust hins vegar meira, eða 2,4% og var því enn halli í viðskiptum við útlönd.  Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla sýnir 0,3% vöxt frá fyrra ári en frá 2. til 3. fjórðungs þessa árs stendur framleiðslan nánast í stað (0,1%).

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2006 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2006)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.