Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 4. ársfjórðungi 2006. Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 2,5% að raungildi á 4. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður. Þjóðarútgjöld jukust hins vegar meira, eða um 3,2% og var því enn halli í viðskiptum við útlönd. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla sýnir 1,9% vöxt frá 3. til 4. fjórðungs ársins 2006 en 3,1% vöxt frá sama tímabili árið áður.
Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2006 - Hagtíðindi
Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2007)