FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 13. MARS 2008

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 4. ársfjórðungi 2007. Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 4,6% að raungildi á 4. fjórðungi síðasta árs frá sama tíma árið áður. Á tímabilinu drógust þjóðarútgjöld saman um tæplega 6%. Útflutningur jókst um 24%, að meðtöldum flugvélum jókst hann um rúmlega 46%, og innflutningur jókst um tæp 4%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,3% frá 3. fjórðungi til 4. fjórðungs síðasta árs.

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2007 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2007)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.