FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 06. MARS 2009

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 4. ársfjórðungi 2008. Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 0,9% að raungildi frá 3. ársfjórðungi 2008 til 4. ársfjórðungs 2008. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 14% þar sem einkaneysla dróst saman um 15% og fjárfesting um tæplega 14%. Samneysla óx hins vegar um 2,4% frá 3. ársfjórðungi 2008 til 4. ársfjórðungs. Þá er talið að útflutningur hafi vaxið um 1,5% en innflutningur hafi dregist saman um tæplega 33%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxtinn milli ársfjórðunga, ekki ára.


Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2008)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.