FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 08. MARS 2011

Landsframleiðsla dróst saman um 1,5% að raungildi milli 3. og 4. ársfjórðungs 2010. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 1,6%. Einkaneyslan jókst um 1,6% og fjárfestingin um 14,9%. Samneysla dróst hins vegar saman um 0,5%. Þá jókst útflutningur um 3,0% og innflutningur um 10,0% á sama tímabili. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára.

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2010 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2010)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.