Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar þar sem birtar eru bráðabirgðatölur Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2004. Þar kemur meðal annars fram að landsframleiðslan á árinu 2004 varð 885 milljarðar og óx að raungildi um 6,2% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 3,6% vaxtar á árinu 2003. Vegna nokkru lakari viðskiptakjara og aukinna vaxta- og arðgreiðslna til útlanda uxu þjóðartekjur nokkru minna eða um 4,9%.
Vöxturinn einkenndist af miklum vexti einkaneyslu sem óx um 6,9% og fjárfestingar sem óx um 21,0%. Þjóðarútgjöldin uxu því talsvert umfram landsframleiðsluna eða um 8,4% og leiddi það til verulegs halla á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd.
Samhliða þessum bráðabirgðatölurm hefur Hagstofan endurskoðað fyrri tímaraðir allt aftur til ársins 1990 vegna breytinga á aðferðum sem beitt er.
Landsframleiðsla 2004 - bráðabirgðatölur - útgáfur