Uppsafnaðar lífeyrisskuldbindingar almannatrygginga námu um 2.700 milljörðum króna í lok árs 2018 samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands eða sem samsvarar 95% af vergri landsframleiðslu (VLF) ársins. Lífeyrisskuldbindingar lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði námu tæpum 3.300 milljörðum króna og opinberra starfsmanna um 1.100 milljörðum króna. Samtals námu áætlaðar heildarlífeyrisskuldbindingar almannatrygginga, opinberra starfsmanna og lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði um 7.100 milljörðum króna í lok árs 2018.
Þetta er í annað sinn sem mat á uppsöfnuðum lífeyrisskuldbindingum er birt en fyrsta birtingin var árið 2015. Þessi tölfræði er hluti af ESA 2010, þjóðhagsreikningastaðli Evrópusambandsins.
Við útreikning á lífeyrisskuldbindingum almannatrygginga er stuðst við svokallaða „uppsöfnun-að-dagsetningu“-aðferð (e. accrued-to-date (ADL)) en inntak hennar eru uppsafnaðar skuldbindingar gagnvart þeim sem þegar hafa unnið sér inn réttindi í lok viðmiðunarársins. Þessi aðferð tekur því ekki mið af mögulegum réttindum út starfsævi þeirra sem eru þegar í kerfinu né nýrra réttindahafa, heldur einungis punktstöðu réttindauppsöfnunar við lok viðmiðunarársins.
Niðurstöðurnar gefa ekki mynd af sjálfbærni lífeyriskerfis almannatrygginga enda ekki um uppsöfnunarkerfi að ræða. Ellilífeyrir í almannatryggingum sem hér er skilgreindur nær til ellilífeyris og heimilisuppbótar ellilífeyrisþega sem greidd er af Tryggingastofnun ríkisins. Lífeyrir eftirlifenda ásamt örorku undir lífeyristökualdri er undanskilinn.
Virði lífeyrisskuldbindinga er mjög háð raunvöxtum og samkvæmt samræmdri aðferðafræði er raunvaxtarprósenta til núvirðingar lífeyrisskuldbindinga almannatrygginga 3%. Á árinu 2018 er mat á áætluðum lífeyrisskuldbindingum almannatrygginga miðað við 3% raunvexti um 2.700 milljarðar króna. Við 1% lækkun vaxtastigsins hækka áætlaðar lífeyrisskuldbindingar í 3.250 milljarða króna og við samskonar hækkun myndu lífeyrisskuldbindingar standa í 2.283 milljörðum króna.
Heildarlífeyrisskuldbindingar sem hlutfall af landsframleiðslu hér á landi námu um 250% á árinu 2018 og nema lífeyrisskuldbindingar almannatrygginga um 95% eins og áður segir. Alþjóðlegur samanburður á lífeyriskerfum ríkja er erfiður sökum þess hversu mismunandi kerfin eru og hvernig þau eru fjármögnuð. Á myndinni hér að neðan er það einungis Holland sem er með hærra hlutfall af fjármögnuðum lífeyrisskuldbindingum en Ísland.
Heimild: Eurostat, hagstofa Evrópusambandsins
Frétt Eurostat um lífeyrisskuldbindingar í þjóðhagsreikningum