FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 10. DESEMBER 2021

Ráðstöfunartekjur heimilageirans jukust um 6,34% á þriðja ársfjórðungi 2021 í samanburði við sama tímabil fyrra árs en áætlað er að ráðstöfunartekjur á mann hafi numið tæplega 1,1 milljón króna á ársfjórðungnum og hafi aukist um 4,4% frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 0,1% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,3% á sama tímabili.

Ársfjóðungslegar ráðstöfunartekjur heimilanna 2020-2021
Milljónir króna2020-Á12020-Á22020-Á32020-Á42021-Á12021-Á22021-Á3
1. Tekjur660.819707.988697.569707.993712.014763.139751.583
D.1 Laun384.357396.328407.059408.638401.752435.877444.636
D.4 Eignatekjur43.20441.52340.83042.42643.26444.09744.987
- D.41 þar af vaxtatekjur14.07112.26411.79313.70914.17612.95213.148
D.62 Lífeyrir og félagslegar bætur104.098133.549118.507125.930123.280131.728121.217
Aðrar tekjur1129.160136.587131.174131.000143.718151.436140.744
2. Gjöld305.288306.927310.995315.735324.397339.925340.514
D.4 Eignagjöld20.72818.44519.56421.83523.93221.39723.307
- D.41 þar af vaxtagjöld20.08717.82318.89921.11923.36620.86522.739
D.5 Skattar á laun113.625118.823122.833123.294123.493135.837139.473
D.61 Tryggingagjöld110.414110.953112.821116.180110.270115.278116.892
Önnur gjöld260.52158.70655.77654.42866.70167.41260.842
B.6G Ráðstöfunartekjur (1. - 2.)355.531401.061386.575392.258387.617423.214411.070
Ráðstöfunartekjur á mann (í þús. kr.)9711.0941.0501.0641.0481.1391.097
Kaupmáttur ráðst.tekna á mann (%)0,7%5,4%0,3%3,1%3,5%-0,3%0,1%

1 Aðrar tekjur innihalda framleiðsluvirði (P.1) og aðrar tekjutilfærslur (D.7) tekjumegin.
2 Önnur gjöld innihalda aðföng (P.2), laun og launatengd gjöld (D.1), skatta á framleiðslu og innflutning (D.2) og aðrar tekjutilfærslur (D.7) gjaldamegin.

Heildartekjur heimilanna jukust um 7,8% á þriðja ársfjórðungi 2021 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna eru launatekjur en þær jukust um 9,2% frá sama ársfjórðungi í fyrra. Áætlað er að eignatekjur hafi aukist um 10% frá sama ársfjórðungi í fyrra sem skýrist að hluta af auknum innlánum en áætlað er að vaxtatekjur hafi aukist um 11,5% á tímabilinu. Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 2,2% en þær jukust einnig töluvert á sama tímabili fyrra árs sem rekja má beint til áhrifa kórónuveirufaraldursins, aukins atvinnuleysis sem fylgdi honum og þeim aðgerðum sem stjórnvöld gripu til í þeim tilgangi að draga úr efnahagslegum áhrifum hans.

Heildargjöld heimilanna jukust um 9,5 % á þriðja ársfjórðungi 2021 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Skattgreiðslur jukust um 13,5% frá sama ársfjórðungi í fyrra og er áætlað að tryggingagjöld hafi aukist um 3,6% á tímabilinu. Eignagjöld jukust um 19,1% á þriðja ársfjórðungi 2021 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra en vaxtagjöld um 20,3% sem einkum skýrist af auknum útlánum lánastofnana til heimila vegna fasteignakaupa.

Ofangreindar niðurstöður eru skilgreindar sem bráðabirgðaniðurstöður en Hagstofan mun birta endurskoðaðar niðurstöður þegar fyrir liggja endanlegri upplýsingar, meðal annars úr skattframtölum fyrirtækja og einstaklinga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.