Hagstofan birtir árlega niðurstöður á eigna- og skuldastöðu einstaklinga samkvæmt skattframtölum. Eignir jukust í fyrra líkt og síðustu ár en meðalskuldir stóðu í stað, eigið fé jókst en þó ekki jafnmikið og árið 2015. Við samanburð á samtölum milli ára ber að hafa í huga að skattgreiðendum hefur fjölgað og meðaltal vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,7% milli áranna 2015 og 2016. Fjárhæðir eru á verðlagi hvers árs.
Færri með neikvæða eiginfjárstöðu í fasteign
Eigið fé alls jókst um 13% árið 2016 og fór í liðlega 3.300 milljarða króna. Það er þó minni hækkun en árið 2015 þegar eigið fé jókst um 17% milli ára. Þau 10% sem eiga mest eigið fé eiga alls um 62% heildarupphæðar eigin fjár eða 2.100 milljarða króna.
Fjölskyldum með neikvætt eigið fé í húsnæði fækkaði líkt og undanfarin ár. Árið 2016 voru 5.856 fjölskyldur með neikvæða eiginfjárstöðu í fasteign eða um 20% færri en árið 2015. Að meðaltali var eiginfjárstaða þessara fjölskyldna neikvæð um 5 milljónir króna sem er svipuð upphæð og árið á undan.
Meðaleign eykst
Heildareignir fóru úr 4.800 milljörðum króna í árslok 2015 í 5.200 milljarða króna í lok árs 2016 sem er aukning um 9% milli ára. Eignir samanstanda af fasteignum, ökutækjum, innistæðum í bönkum og verðbréfum. Hlutur fasteigna var 73%, ökutækja 5%, bankainnistæða 12% og verðbréfa 9%.
Samanlagðar eignir fjölskyldna sem eru í hæstu tíund eigna nema 2.300 milljörðum króna eða alls 45% af heildareignum. Þessi sami hópur á samtals 400 milljarða króna í verðbréfum eða 86% af heildarverðbréfaeign.
Vakin er athygli á því að frá 2012 hafa miðgildi og meðaltal eigna þróast hvort í sína áttina. Miðgildi eigna hefur lækkað en meðaltalið hefur hækkað. Á árunum fyrir efnahagshrun fylgdust þessar breytur að en flöktu nokkuð í kjölfar hrunsins. Skýringin á þessari þróun kann að vera sú að hlutfallslega færri fjölskyldur eiga fasteignir en fasteignir hafa hækkað í verði.
Skuldir aukast
Heildarskuldir námu 1.900 milljörðum króna í árslok 2016 og jukust um 3% frá fyrra ári. Árið 2016 voru 23% fjölskyldna skuldlausar sem er aukning um tvö prósentustig frá fyrra ári. Af skuldsettum fjölskyldum skuldaði helmingur rúmlega 5 milljónir króna eða minna og 90% minna en 32 milljónir króna. Samanlagðar skuldir fjölskyldna í hæstu skuldatíund námu 700 milljörðum króna eða 39% heildarskulda.
Talnaefni um skuldir, eignir og eiginfjárstöðu einstaklinga fyrir árin 1997–2016 er að finna hér. Jafnhliða útgáfu talna ársins 2016 hefur áður birt talnaefni fyrir árin 1997–2015 verið endurskoðað.