Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 9,9% á fjórða ársfjórðungi 2023 samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum borið saman við sama tímabil fyrra árs. Ráðstöfunartekjur á mann numu rúmlega 1,4 milljón króna á ársfjórðungnum og jukust um 7,5% frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar dróst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann saman um tæp 0,4% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 7,9% á sama tímabili.
Heildartekjur heimilanna jukust um 10,6% á fjórða ársfjórðungi 2023 samanborið við sama ársfjórðung fyrra árs en þar af jukust launatekjur um 9% og eignatekjur um 15,3%. Heildargjöld heimilanna jukust um 11,5% á fjórða ársfjórðungi 2023 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra en þar af jukust skattar á laun um 8,2% og vaxtagjöld um 27,2%.
Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um rúmlega 9,6% á fjórða ársfjórðungi 2023 borið saman við sama ársfjórðung 2022 og námu 14,2% af heildartekjum heimilanna á ársfjórðungnum. Tryggingagjöld atvinnurekenda og launafólks heimilisgeirans jukust um rúmlega 6,3% á ársfjórðungnum samanborið við sama ársfjórðung í fyrra.
Áætlað er að ráðstöfunartekjur heimilanna hafi aukist um 9,6% árið 2023 borið saman við fyrra ár. Ráðstöfunartekjur á mann numu rúmlega 5,5 milljónum króna á árinu 2023 og jukust um 6,9% frá fyrra ári en mannfjöldaaukning var rúmlega 2,5% á árinu. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila á mann hafi dregist saman um 1,7% á árinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 8,8% á sama tímabili.
Aukning í launatekjum heimilanna
Heildartekjur heimilanna jukust árið 2023 um 12,3% frá fyrra ári. Sá liður sem þyngst vegur í hækkun á heildartekjum heimilanna eru launatekjur sem áætlað er að hafi aukist um 220 milljarða frá fyrra ári eða sem nemur 11,1%. Á sama tímabili jukust skattar á laun um 63,5 milljarða eða um 10,7%. Samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands hækkuðu laun að meðaltali um 9,8% á árinu 2023 borið saman við fyrra ár en starfandi einstaklingum fjölgaði um 4,4% á sama tímabili.
Áætlað er að vaxtagjöld heimila hafi aukist um 45,4% á árinu 2023 borið saman við fyrra ár sem skýrist bæði af auknum útlánum til heimila og hærri vöxtum. Á sama tímabili jukust eignatekjur heimila um 24,1% en áætlað er að vaxtatekjur heimila hafi aukist um 51% á tímabilinu.
Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 8,8% á milli ára
Áætlað er að lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur til heimilanna hafi aukist um tæpa 45 milljarða króna frá fyrra ári sem nemur um 8,8% aukningu á milli ára.
Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur námu 14,4% af heildartekjum heimilanna árið 2023 samanborið við tæplega 15% árið 2022 og 16,9% árið 2021.
Tryggingagjöld atvinnurekenda og launafólks heimilisgeirans jukust um 6,8% árinu 2023.
Aðferð við mat á mannfjölda var endurskoðuð í mars 2024 og tímaraðir uppfærðar frá og með árinu 1998. Ofangreindar niðurstöður eru skilgreindar sem bráðabirgðaniðurstöður en Hagstofan mun birta endurskoðaðar niðurstöður þegar fyrir liggja endanlegri upplýsingar, meðal annars úr skattframtölum fyrirtækja og einstaklinga.