Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 6,1% árið 2025 borið saman við fyrra ár samkvæmt endurskoðuðum bráðabirgðaniðurstöðum tekjuskiptingaruppgjörs. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 6,4 milljónum króna á árinu og jukust um 4,6% frá fyrra ári. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 0,5% á árinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,1%.
Áhrif endurskoðunar á samanburð á milli ára
Ráðstöfunartekjur ársins 2024 hafa verið endurskoðaðar vegna leiðréttingar á gögnum um bætur frá vátryggingafélögum. Sú leiðrétting eykur tekjur ársins 2024 en hefur engin áhrif á tekjur ársins 2025. Grunnáhrif leiðréttingarinnar draga því úr kaupmáttaraukningu vegna ársins 2025 miðað við 2024. Jafnframt hafa afskriftir verið endurskoðaðar til samræmis við önnur uppgjör þjóðhagsreikninga.
Uppfærðar tölur fyrir árið 2025 verða birtar í desember 2026 en þá munu liggja fyrir ítarlegri gögn um rekstur fyrirtækja.
Samkvæmt tekjuskiptingaruppgjöri þjóðhagsreikninga jukust heildartekjur heimilanna um 7,3% árið 2025 samanborið við fyrra ár. Þar af jukust launatekjur um 7,4% og eignatekjur um 4,2%. Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 11% sem má að mestu rekja til 11,9% hækkunar greiðslna úr lífeyrissjóðum frá fyrra ári og 13,3% hækkunar á bótum almannatrygginga. Félagsleg aðstoð dróst saman um 5,9%, sem vó að hluta á móti hækkuninni en samdráttinn má að mestu rekja til þess að sérstakur vaxtastuðningur var greiddur árið 2024 en ekki árið 2025.
Gjöld heimilanna jukust um 8,9% á árinu 2025 samanborið við fyrra ár en þar af jukust skattar á laun um 10,1% og eignagjöld um 6,9%.
Samkvæmt nýju bráðabirgðamati 2026 jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 0,9% á fyrsta ársfjórðungi 2026 og um 0,8% á öðrum ársfjórðungi.
Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 7,3% á öðrum ársfjórðungi 2026 borið saman við sama tímabil fyrra árs. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 1,7 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 6% frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur á mann um 0,8% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 5,2% á sama tímabili.
Heildartekjur heimilanna jukust um 6,2% á öðrum ársfjórðungi 2026. Launatekjur eru stærsti hluti heildartekna en þær jukust um 5,1% frá sama ársfjórðungi á síðasta ári.
Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 16,9% á öðrum ársfjórðungi 2025 samanborið við sama tímabil fyrra árs og námu 16,9% af heildartekjum heimilanna á ársfjórðungnum.
Gjöld heimilanna jukust um 4,9% á öðrum ársfjórðungi en þar af jukust skattar á laun um 6,3% og vaxtagjöld um 10%. Þá jukust tryggingagjöld atvinnurekenda og launafólks heimilageirans um 2,1% samanborið við sama tímabil fyrra árs.