FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 15. JÚNÍ 2022

Áætlað er að ráðstöfunartekjur heimilageirans hafi aukist um 9,64% á fyrsta ársfjórðungi 2022 í samanburði við sama tímabil fyrra árs. Ráðstöfunartekjur á mann numu rúmlega 1,1 milljón króna á ársfjórðungnum og hafi aukist um 7,49% frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 1,23% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 6,18% á sama tímabili.


Heildartekjur heimilanna jukust um 12,6% á fyrsta ársfjórðungi 2022 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna eru launatekjur en þær jukust um 15,8% frá sama ársfjórðungi í fyrra. Áætlað er að eignatekjur hafi aukist um 6,7% frá sama ársfjórðungi í fyrra en áætlað er að vaxtatekjur hafi aukist um 18,9% á tímabilinu.

Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur drógust saman um 2,4% á fyrsta ársfjórðungi 2022, samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. Þar af mælist aukning í lífeyristekjum sem vegur upp á móti töluverðum samdrætti í félagslegum tilfærslum til heimilanna eftir að félagslegar tilfærslur jukust töluvert á sama tímabili fyrra árs sem rekja má beint til áhrifa kórónuveirufaraldursins, aukins atvinnuleysis sem fylgdi faraldrinum og þeim aðgerðum sem stjórnvöld gripu til í kjölfarið.

Áætlað er að heildargjöld heimilanna hafi aukist um 16,2% á fyrsta ársfjórðungi 2022 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Skattgreiðslur jukust um 20,4% frá sama ársfjórðungi í fyrra og er áætlað að tryggingagjöld hafi aukist um 17% á tímabilinu. Eignagjöld jukust um 14,6% á fyrsta ársfjórðungi 2022 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra en vaxtagjöld þar af um 15% sem einkum skýrist af auknum útlánum lánastofnana til heimila vegna fasteignakaupa.

Ofangreindar niðurstöður eru skilgreindar sem bráðabirgðaniðurstöður en Hagstofan mun birta endurskoðaðar niðurstöður þegar fyrir liggja endanlegri upplýsingar, meðal annars úr skattframtölum fyrirtækja og einstaklinga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.