FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 19. JÚNÍ 2024

Áætlað er að ráðstöfunartekjur heimilageirans hafi aukist um 9,8% á fyrsta ársfjórðungi 2024 í samanburði við sama tímabil fyrra árs. Ráðstöfunartekjur á mann numu rúmlega 1,4 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 6,8% frá sama tímabili árið 2023. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 0,1% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 6,7% á sama tímabili.

Heildartekjur heimilanna jukust um 7,9% á fyrsta ársfjórðungi 2024 samanborið við sama ársfjórðung árið 2023. Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna er launatekjur en þær jukust um 5,8% frá sama ársfjórðungi á síðasta ári. Áætlað er að eignatekjur hafi aukist um 12,9% frá sama ársfjórðungi árið 2023 en áætlað er að vaxtatekjur hafi aukist um 36,1% á tímabilinu.

Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 9,1% á fyrsta ársfjórðungi 2024 samanborið við fyrsta ársfjórðung árið 2023. Sá liður sem vegur hvað þyngst í hækkuninni er hækkun lífeyristekna um 17,4%.

Áætlað er að heildargjöld heimilanna hafi aukist um 5,6% á fyrsta ársfjórðungi 2024 samanborið við sama ársfjórðung árið áður. Skattgreiðslur jukust um 7% frá sama ársfjórðungi árið 2023 og er áætlað að tryggingagjöld hafi aukist um 1,4% á tímabilinu. Eignagjöld jukust um 22% á fyrsta ársfjórðungi 2024 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Þar af jukust vaxtagjöld um 22,8%.

Ofangreindar niðurstöður eru bráðabirgðaniðurstöður en Hagstofan mun birta endurskoðaðar niðurstöður þegar fyrir liggja endanlegri upplýsingar, meðal annars úr skattframtölum fyrirtækja og einstaklinga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.