FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 17. DESEMBER 2024

Áætlað er að ráðstöfunartekjur heimilageirans hafi aukist um 8% á þriðja ársfjórðungi 2024 í samanburði við sama tímabil fyrra árs. Ráðstöfunartekjur á mann numu tæplega 1,6 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 6,2% frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 0,3% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 5,9% á sama tímabili.

Heildartekjur heimilanna jukust um 8% á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna er launatekjur en þær jukust um 6,8% frá sama ársfjórðungi á síðasta ári. Áætlað er að eignatekjur hafi aukist um 11,8% frá sama ársfjórðungi í fyrra en áætlað er að vaxtatekjur hafi aukist um 35,6% á tímabilinu.

Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 14,5% á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við þriðja ársfjórðung árið 2023. Hækkun lífeyristekna um 12,4% er sá liður sem vó hvað þyngst í hækkuninni.

Áætlað er að heildargjöld heimilanna hafi aukist um 8,1% á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Skattgreiðslur jukust um 6% frá sama ársfjórðungi í fyrra og er áætlað að tryggingagjöld hafi aukist um 5,1% á tímabilinu. Þá jukust eignagjöld um 5,4% á þriðja ársfjórðungi 2024 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Þar af vaxtagjöld um 6,2%.

Talnaefni hefur verið uppfært í samræmi við endurskoðaða aðferð við mat á mannfjölda eftir ársfjórðungum.

Ofangreindar niðurstöður eru bráðabirgðaniðurstöður en Hagstofan mun birta endurskoðaðar niðurstöður þegar fyrir liggja endanlegri upplýsingar, meðal annars úr skattframtölum fyrirtækja og einstaklinga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.