Áætlað er að ráðstöfunartekjur heimilageirans hafi aukist um 7,1% á þriðja ársfjórðungi 2025 í samanburði við sama tímabil fyrra árs. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 1,6 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 5,9% frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 1,9% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 4% á sama tímabili.
Breyting kaupmáttar ársfjórðungslegra ráðstöfunartekna á mann
Heildartekjur heimilanna jukust um 6,7% á þriðja ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna er launatekjur en þær jukust um 7,3% frá sama ársfjórðungi á síðasta ári.
Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 6,4% á þriðja ársfjórðungi 2025 samanborið við þriðja ársfjórðung árið 2024 og námu um 15,5% af heildartekjum heimilanna.
Áætlað er að heildargjöld heimilanna hafi aukist um 6,1% á þriðja ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Skattgreiðslur jukust um 6,9% frá sama ársfjórðungi í fyrra og er áætlað að tryggingagjöld hafi aukist um 4,2% á tímabilinu. Þá jukust eignagjöld um 3,1% á þriðja ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Þar af vaxtagjöld um 3%.
Ofangreindar niðurstöður eru bráðabirgðaniðurstöður en Hagstofan mun birta endurskoðaðar niðurstöður þegar fyrir liggja endanlegri upplýsingar, meðal annars úr skattframtölum fyrirtækja.
Við endurskoðun þjóðhagsreikninga í maí á þessu ári voru afskriftir ekki uppfærðar samhliða endurskoðuninni í tekjuskiptingaruppgjöri. Þetta hefur verið leiðrétt og eru afskriftir nú í samræmi við endurskoðuð þjóðhagsreikningagögn.