Hagstofa Íslands birtir staðvirt útgjöld erlendra ferðamanna á tímabilinu frá 2009 til 2023. Keðjutengt verðmæti útgjalda erlendra ferðamanna hefur almennt þróast í takt við útgjöld á verðlagi hvers árs. Á nýliðnum árum hefur keðjutengda verðmætið aftur á móti vaxið heldur hægar en útgjöld á verðlagi hvers árs.
Þróunin skýrist af því að verðlag í ferðaþjónustugeiranum hefur farið hækkandi í kjölfar kórónuveirufaraldursins.