Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út þjóðhagsspá á vetri í ritröð sinni, Hagtíðindum. Spáin nær til áranna 2015–2019. Í henni er m.a. gert ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 4,3% á þessu ári og 3,5% árið 2016.
Fjárfesting og einkaneysla knýja hagvöxtinn fyrstu tvö ár spátímans. Árið 2015 er gert ráð fyrir að einkaneysla verði um 4,4% og fjárfesting um 17,7%. Á árinu 2016 er gert ráð fyrir að vöxtur einkaneyslu verði 4,7% og fjárfestingar um 15,5%.
Árin 2017 til 2019 er spáð 2,5–2,8% hagvexti og 2,7–4,2% aukningu einkaneyslu, en það dregur úr aukningu fjárfestingar.
Búist er við að samneysla aukist um 1,1–1,5% árlega 2015–2018 en opinber fjárfesting aukist lítillega.
Lágt olíu- og hrávöruverð ásamt lítilli alþjóðlegri verðbólgu og gengisstyrkingu krónunnar hafa haldið verðbólgu á Íslandi niðri þrátt fyrir hækkandi launakostnað. Spáð er að verðbólga aukist á næstunni og verði 3,2% árið 2016 og 3,7% árið 2017 en fari lækkandi eftir það.
Kjarasamningar á árinu, sem ná til flestra launþega, fela í sér miklar launahækkanir árin 2015 og 2016. Endurskoðunarákvæði í kjarasamninga og SALEK-samkomulagið viðhalda til skamms tíma óvissu um launakjör á næstunni.
Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 29. apríl síðastliðinn og er næsta útgáfa ráðgerð í apríl 2016.
Þjóðhagsspá á vetri 2015 – Hagtíðindi