Hagstofa Íslands hefur gefið út endurskoðaða þjóðhagsspá að vetri í ritröð sinni, Hagtíðindum. Spáin tekur til áranna 2018 til 2024.
Útlit er fyrir að verg landsframleiðsla aukist um 1,7% í ár. Það er nokkuð minni aukning miðað við meðalvöxt síðustu fimm ára sem er um 4,4%. Verri horfur í ár má meðal annars rekja til minni útflutnings, en reiknað er með tæplega 3% aukningu þjóðarútgjalda. Næstu ár er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði á bilinu 2,5-2,8%. Gert er ráð fyrir að hægja muni á vexti einkaneyslu í ár og að hann verði 3,6%. Uppfærðar fjárhagsáætlanir sveitarfélaga, ásamt fjárlögum 2019 sem afgreidd voru í desember síðastliðnum, gera það að verkum að endurskoðuð spá fyrir vöxt samneyslu í ár er 2,7%.
Hægt hefur á fjárfestingu að undanförnu og er áætlað að hún aukist um rúmlega 1% í ár en vaxi hraðar eftir það. Gert er ráð fyrir að fjárfestingarstig verði lítillega yfir meðaltali síðustu 20 ára sem er í kringum 22% af landsframleiðslu. Útflutningshorfur hafa versnað frá fyrri spá vegna aukinnar óvissu í ferðaþjónustu og líkum á minna framboði flugs til landsins á árinu. Reiknað er með 1,6% vexti útflutnings á árinu.
Eftir að gengi krónunnar tók að lækka síðastliðið haust versnuðu verðbólguhorfur. Í ár er spáð 3,8% verðbólgu, þar sem gengisáhrif vega þungt. Óvissa um verðbólguhorfur er þó töluverð vegna breytinga í ferðaþjónustu og útkomu kjarasamninga.
Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 2. nóvember sl. og er næsta útgáfa fyrirhuguð í maí.
Þjóðhagsspá að vetri, endurskoðun - Hagtíðindi