FRÉTT ÞJÓÐHAGSSPÁ 29. APRÍL 2015

Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út þjóðhagsspá á vori í ritröð sinni, Hagtíðindum. Spáin nær til áranna 2015 til 2019. Í henni er m.a. gert ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 3,8% á þessu ári og 3,2% árið 2016.

Mikill vöxtur fjárfestingar og einkaneyslu drífur hagvöxt fyrstu tvö ár spátímans. Árið 2015 er spáð að landsframleiðslan aukist um 3,8%, einkaneysla um 3,8% og fjárfesting um 18,1%.  Á árinu 2016 er gert ráð fyrir að landsframleiðslan aukist um 3,2%, einkaneysla um 3,3% og fjárfesting um 16,3%.

Hagvöxtur er talinn verða 2,5 - 2,8% árlega frá 2017 til 2019 en á þeim tíma er reiknað með að einkaneysla aukist kringum 3% á ári og að dragi úr vexti fjárfestingar.

Samneysla er talinn aukast um 1,5 - 1,8% árlega 2015 - 2018 og lítið eitt meira árið 2019.

Verðbólga hefur verið mjög lítil að undanförnu, fyrst og fremst vegna styrkingar krónunnar og mikillar lækkunar olíuverðs.  Reiknað er með að verðbólga verði 1,7% árið 2015 en aukist nokkuð á næstunni og hún verði um 3% árið 2016 en lækki í 2,5% í lok spátímans. 

Flestir kjarasamningar eru lausir um þessar mundir og hægt gengur að semja. Breitt bil milli samningsaðila í kjaradeilunni veldur mikilli óvissu um launa og verðlagsþróun á næstunni.

Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 14. nóvember síðastliðinn og er næsta útgáfa ráðgerð í júlí 2015.

Þjóðhagsspá á vori 2015 – Hagtíðindi 

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1073 , netfang Marino.Melsted@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.