FRÉTT ÞJÓÐHAGSSPÁ 04. NÓVEMBER 2024

Hagstofa Íslands hefur gefið út þjóðhagsspá í ritröð sinni Hagtíðindum. Spáin tekur til áranna 2024 til 2030.

Útlit er fyrir að verg landsframleiðsla aukist um 0,1% í ár. Samkvæmt þjóðhagsreikningum dróst verg landsframleiðsla saman um 1,9% á fyrri hluta ársins sem einkenndist af neikvæðum áhrifum utanríkisviðskipta og birgðabreytinga, m.a. vegna loðnubrests.

Mestur var samdrátturinn á fyrsta ársfjórðungi en reiknað er með hagvexti á seinni hluta ársins, þá er gert ráð fyrir viðsnúningi í utanríkisviðskiptum og hóflegum vexti einkaneyslu. Árið 2025 er spáð 2,4% hagvexti sem byggist á áframhaldandi vexti einkaneyslu, bata í utanríkisviðskiptum og jákvæðu framlagi fjármunamyndunar. Árið 2026 er hagvöxtur áætlaður 2,7% og að vöxturinn verði á breiðum grunni.

Horfur eru á að verðbólga hjaðni áfram á næstu árum en hagkerfið hefur kólnað og aðhald peningastefnunnar er enn mikið. Þá hefur gengi krónunnar styrkst á síðustu mánuðum, verðbólga erlendis hjaðnað og olíuverð á heimsmörkuðum lækkað. Hóflegir kjarasamningar til lengri tíma styðja einnig við hjöðnun verðbólgu.

Útlit er fyrir að vísitala neysluverðs hækki að meðaltali um 5,9% á þessu ári og um 3,8% árið 2025. Árið 2026 er reiknað með að verðbólga verði að meðaltali 2,7%. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi aukist samhliða hægari efnahagsumsvifum og verði að meðaltali 3,7% í ár og 4,1% á næsta ári. Laun hafa hækkað að raunvirði það sem af er ári og er gert ráð fyrir að launavísitala miðað við fast verðlag hækki um 0,5% í ár og 1,8% á næsta ári.

Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 28. júní og er næsta útgáfa fyrirhuguð í mars nk.

Þjóðhagsspá — Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1073 , netfang Marino.Melsted@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.