FRÉTT UMHVERFI 24. JANÚAR 2020

Losun CO2  ígilda (kt)

Samkvæmt bráðabirgðaútreikningum hefur losun CO2 ígilda frá flugsamgöngum dregist saman um 44% á milli áranna 2018 og 2019. Samdráttinn má rekja til fækkunar flugfélaga í millilandaflugi, en tvö íslensk flugfélög hættu rekstri í lok árs 2018 og upphafi árs 2019. Losun í flugrekstri jókst hins vegar um 5% á milli áranna 2017 og 2018. Losun hér tekur eingöngu tillit til reksturs íslenskra félaga, en ekki losunnar vegna flugferða erlendra flugfélaga sem hafa viðkomu á Íslandi.

CO2 ígildi 2017-útgefið20182019
Sjávarútvegur og fiskeldi428425433
Heimili617621635
Landbúnaður og matvælaframleiðsla649659651
Sjóflutningar619701707
Stóriðja183518441839
Flutningar með flugi264527811564

Losun frá sjóflutningum eykst töluvert árið 2018 en er svipuð milli áranna 2018 og 2019. Heildarlosun frá stóriðju breytist lítið á árunum 2017-2019, en hins vegar er nokkur mismunur í losun eftir atvinnugreinum sem teljast til stóriðju.

Heildarlosun frá stóriðju 2017-2019

Losun frá málmframleiðslu, lækkaði um tæp 110 kílótonn CO2 ígilda á milli 2018 og 2019, en þessa lækkun má rekja til minni framleiðslu og bilana í verksmiðjum. Losun CO2 ígilda frá kísilverum jókst hins vegar um nær sama magn á sama tíma.

Tölur um losun fyrir árin 2018 og 2019 eru bráðabirgðartölur og gefa vísbendingu um þróun losunar frá hagkerfi Íslands. Tölurnar verða endurskoðaðar þegar nákvæmari gögn liggja fyrir, eða þegar og ef aðferðarfræði verður endurskoðuð. Nánari lýsingu á aðferðarfræði er að finna í lýsigögnum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1278 , netfang umhverfi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.